Byrjað er að auglýsa jólatónleika og hefst sala á þá fyrstu eftir viku. Það eru tónleikar hinnar norsku Sissel Kyrkjebø sem kemur til landsins þriðja árið í röð, en uppselt hefur verið á alla fyrri tónleika hennar.
Björgvin Halldórsson er einnig búinn að taka frá og auglýsa dagsetningar fyrir Jólagesti Björgvins, en ekki er byrjað að auglýsa miðasölu fyrir þá.
Það er því ekki seinna vænna að taka fram dagatalið og debet- eða kreditkortið og ákveða hvar þú ætlar að verja kvöldunum í desember.