Boðið var upp á fordrykki, ljúffengt lambakjöt, meðlæti og dýrindis franska súkkulaðiköku í desert. Happdrætti var þar sem fyrirtæki gáfu veglega vinninga.
Skemmtiatriðin voru ekki af verri endanum, Eva Ruza kíkti í möppu Esterar með dónabröndurum og spjallaði við Jónu Guðný um Tinder menninguna á Siglufirði. Konurnar í salnum veltust um af hlátri, enda þarna skemmtilegar dömur á ferð.
Fleiri skemmtiatriði voru á dagskrá og það er alveg ljóst að skemmtikvöld Sinawik kvenna á Siglufirði er skemmtun sem vert er að taka þátt í.
Á heimasíðu Trölli.is má lesa nánar um skemmtikvöldið og sjá fleiri myndir.