Kvikmyndin Ég man þig, sem gerð er eftir samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur, var að hluta kvikmynduð í Bakka í Grindavík, sem er ein elsta uppistandandi verbúð á Suðurnesjum. Minja- og sögufélag Grindavíkur eignaðist húsið í maí 2015 og hefur síðan unnið að því að gera það upp.
Til allrar hamingju fyrir framleiðendur myndarinnar voru framkvæmdir við Bakka enn á undirbúningsstigi þegar tökur voru að byrja, en að þeirra sögn var húsið eins og klippt út úr þeirra draumahugmyndum um tökustað fyrir myndina. Tökur fóru fram í lok árs 2015.
„Félagið hyggst gera húsið upp og hefja til vegs og virðingar að nýju. Vonir standa til að í framtíðinni muni það hýsa byggðasafn okkar Grindvíkinga og aðra menningartengda starfsemi,“ segir Marta Karlsdóttir, sem er gjaldkeri félagsins.
Fyrir stuttu bauð félagið upp á sýningu á Ég man þig, Bakka og verður önnur sýning nú um páskana, 30. mars klukkan 20. Miðaverð er 500 krónur og rennur til uppbyggingar hússins og komast færri að en vilja, en einungis 30 geta séð myndina í hvert sinn. Er líklega einsdæmi að hægt sé að sjá kvikmynd hér á landi á tökustað hennar.
Þeir sem vilja taka þátt í starfi Minja- og sögufélagsins geta fundið félagið á Facebook og kíkt á opna fundi í Kvennó sem eru flest miðvikudagskvöld klukkan 20.00.