fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Fókus

Molar úr sögu Óskarsverðlaunanna

Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 26. febrúar 2017 12:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óskarsverðlaunin verða afhent næstkomandi sunnudagskvöld í Los Angeles. Hér eru nokkrir fróðleiksmolar um vinningshafa og þá sem tilnefndir hafa verið hvað oftast.

Leikarinn John Cazale varð ekki langlífur, lést 42 ára gamall úr krabbameini. Hann lék í fimm kvikmyndum í fullri lengd og eftir lát hans voru gömul myndskot notuð í þeirri sjöttu. Allar þessar sex myndir voru tilnefndar til Óskarsverðlauna. Þrjár þeirra voru valdar besta myndin: Guðfaðirinn, Guðfaðirinn II og The Deer Hunter en þar lék Cazale á móti sambýliskonu sinni, Meryl Streep.
Allar myndir Cazale í fullri lengd tilnefndar Leikarinn John Cazale varð ekki langlífur, lést 42 ára gamall úr krabbameini. Hann lék í fimm kvikmyndum í fullri lengd og eftir lát hans voru gömul myndskot notuð í þeirri sjöttu. Allar þessar sex myndir voru tilnefndar til Óskarsverðlauna. Þrjár þeirra voru valdar besta myndin: Guðfaðirinn, Guðfaðirinn II og The Deer Hunter en þar lék Cazale á móti sambýliskonu sinni, Meryl Streep.
Enginn leikkona og leikari hefur hlotið fleiri tilnefningar til Óskarsverðlauna en Meryl Streep eða alls 20 en hún hefur þrisvar hlotið verðlaunin. Í ár er hún tilnefnd fyrir snjallan leik sinn í Florence Foster Jenkins. Sá karlleikari sem hlotið hefur flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna er Jack Nicholson en tilnefningar hans eru tólf.
Streep á metið Enginn leikkona og leikari hefur hlotið fleiri tilnefningar til Óskarsverðlauna en Meryl Streep eða alls 20 en hún hefur þrisvar hlotið verðlaunin. Í ár er hún tilnefnd fyrir snjallan leik sinn í Florence Foster Jenkins. Sá karlleikari sem hlotið hefur flestar tilnefningar til Óskarsverðlauna er Jack Nicholson en tilnefningar hans eru tólf.
Hljóðmaðurinn Kevin O'Connell hefur verið kallaður óheppnasti maður í sögu Óskarsverðlaunanna. Hann hefur tuttugu og einu sinni verið tilefndur til Óskarsverðlauna fyrir bestu hljóðsetningu en aldrei hlotið verðlaunin. Í ár er hann tilnefndur fyrir hljóðvinnu við mynd Mel Gibson, Hawksaw Ridge. Ekki nema von að margir haldi með honum. Sjálfur segist hann ekki velta verðlaunaveitingum mikið fyrir sér.
Vinnur Kevin loksins? Hljóðmaðurinn Kevin O'Connell hefur verið kallaður óheppnasti maður í sögu Óskarsverðlaunanna. Hann hefur tuttugu og einu sinni verið tilefndur til Óskarsverðlauna fyrir bestu hljóðsetningu en aldrei hlotið verðlaunin. Í ár er hann tilnefndur fyrir hljóðvinnu við mynd Mel Gibson, Hawksaw Ridge. Ekki nema von að margir haldi með honum. Sjálfur segist hann ekki velta verðlaunaveitingum mikið fyrir sér.

Lengsta þakkarræða í sögu Óskarsverðlaunanna var flutt af Greer Garson þegar hún hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í Frú Miniver. Hún talaði í 5 mínútur og 30 sekúndur. Síðan var sett regla um að þakkarræður mættu ekki vera lengri en 45 sekúndur. Stystu þakkarræðurnar fluttu William Holden, þegar hann fékk verðlaunin fyrir leik í Stalag 17, og Alfred Hitchcock, sem fékk heiðursverðlaun Akademíunnar. Báðir sögðu einfaldlega: „Þakka ykkur fyrir.“
Hélt lengstu ræðuna Lengsta þakkarræða í sögu Óskarsverðlaunanna var flutt af Greer Garson þegar hún hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í Frú Miniver. Hún talaði í 5 mínútur og 30 sekúndur. Síðan var sett regla um að þakkarræður mættu ekki vera lengri en 45 sekúndur. Stystu þakkarræðurnar fluttu William Holden, þegar hann fékk verðlaunin fyrir leik í Stalag 17, og Alfred Hitchcock, sem fékk heiðursverðlaun Akademíunnar. Báðir sögðu einfaldlega: „Þakka ykkur fyrir.“

Walt Disney er sá sem oftast hefur verið tilnefndur til Óskarsverðlauna, 59 sinnum. Hann hlaut 26 verðlaun á sínum langa og farsæla ferli, sem er met.
Flestar tilnefningar Walt Disney er sá sem oftast hefur verið tilnefndur til Óskarsverðlauna, 59 sinnum. Hann hlaut 26 verðlaun á sínum langa og farsæla ferli, sem er met.

Á meðal núlifandi einstaklinga á tónskáldið John Williams metið þegar kemur að tilnefningum. Hann hefur verið tilnefndur 50 sinnum til Óskarsverðlauna og hlotið þau fimm sinnum. Einungis Walt Disney var tilnefndur oftar.
50 tilnefningar Á meðal núlifandi einstaklinga á tónskáldið John Williams metið þegar kemur að tilnefningum. Hann hefur verið tilnefndur 50 sinnum til Óskarsverðlauna og hlotið þau fimm sinnum. Einungis Walt Disney var tilnefndur oftar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Shannon Doherty látin aðeins 53 ára að aldri

Shannon Doherty látin aðeins 53 ára að aldri
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heilabrot: Sú mynd sem þú sérð fyrst lýsir persónuleika þínum

Heilabrot: Sú mynd sem þú sérð fyrst lýsir persónuleika þínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 6 dögum

Býfluga fór illa með Hollywood-kyntáknið

Býfluga fór illa með Hollywood-kyntáknið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á