Lincoln in the bardo eftir George Saunders hlýtur Man Booker-bókmenntaverðlaunin
Bandaríski rithöfundurinn George Saunders hlýtur hin virtu bresku Man Booker-bókmenntaverðlaun árið 2017 fyrir skáldsögu sína Lincoln in the Bardo. Þetta var tilkynnt á þriðjudag.
Bókin er tilraunakennd skáldsaga sem gerist árið 1862 þegar Abraham Lincoln heimsækir gröf sonar sinn Willie sem lést 11 ára gamall úr taugaveiki. Andi drengsins er staðsettur í limbói milli lífs og dauða þar sem hópur drauga heldur til og spjallar. Bókin byggir að hluta til á sögulegum staðreyndum, en blandar raunverulegum og skálduðum frásögnum við einræður drauganna. Dómnefnd verðlaunanna sagði bókina „einstaka“ og „ótrúlegt“ verk.
Höfundurinn segir upp með sér að dómnefndin hafi valið svo óvenjulega bók en hann viðurkennir sjálfur að bókin sé ekki allra: „Form bókarinnar er undarlegt og ég held að það fæli suma lesendur frá,“ sagði hann eftir að hann tók við verðlaununum.
Lincoln in the Bardo er fyrsta skáldsaga Saunders í fullri lengd en hann hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir smásögur sínar, nóvellur og ritgerðir.
Þetta er annað árið í röð sem bandarískur rithhöfundur hlýtur verðlaunin, en í fyrra varð Paul Beatty fyrsti bandaríski höfundurinn til að hljóta verðlaunin. Til ársins 2014 gátu aðeins Bretar eða íbúar breska samveldisins hlotið verðlaunin, en þá var reglunum breytt svo að allar bækur sem komu út í Bretlandi á ensku áttu möguleika.
Hér fyrir neðan má myndband af Saunders að tala um og lesa upp brot úr bókinni.
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=Y2yA4TI1kS4&w=100&h=315]