Steindi, Hlín Einars og Kalli Bjarna leiða saman hesta sína
Nýr þáttur, Ghetto Betur mun hefja göngu sína á Stöð 2 í maí næstkomandi í umsjá Steinþórs Hróars Steinþórssonar, eða Steinda Jr. Vísir.is greinir frá.
Í þættinum munu keppa fulltrúar frá hverju bæjarfélagi sem svara munu vel völdum spurningum. Liðunum verða sem fyrir ákveðnar þrautir sem þarf að leysa, þar á meðal að stela úr matvörubúðum svo eitthvað sé nefnt.
„Þessi þáttur er eins og Gettu betur, en samt ekki,“ er haft eftir Steinda á Vísi.is.
Ásamt Steinda verða Hlín Einarsdóttir dómari, Kalli Bjarni verður stigavörður og María Guðmundsdóttir leikkona verður plötusnúður þáttarins.
Í tilkynningu segir að Steindi muni kynna sér allar hliðar bæjarfélaganna en fyrst og fremst sé um að ræða fræðandi spurningaþátt.