Óhætt er að segja að mikill svipur sé með tónlistarmanninum Jóni Ólafssyni og ritstjóranum fyrrverandi, Styrmi Gunnarssyni. Þó að vissulega sé hinn síðarnefndi töluvert eldri.
Jón hefur glatt Íslendinga með hljómsveitinni Ný dönsk í hartnær þrjátíu ár en þar áður hafði hann getið sér frægðar með Bítlavinafélaginu. Jón hefur einnig gefið út sólóplötur og stýrt hinum geysivinsælu þáttum Af fingrum fram sem sýndir eru á RÚV.
Styrmir er einn af áhrifamestu fjölmiðlamönnum Íslands og ritstýrði Morgunblaðinu í 36 ár. Styrmir hefur verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni síðan og meðal annars gefið út bók um bankahrunið.