Óhætt er að segja að samfélagið hafi lagst á hliðina í kjölfar greinar sem fréttaritið Pressan birti árið 1994. Þar voru framúrskarandi íslenskir elskhugar í brennidepli og voru birtar sögur og nöfn álitsgjafa sem töldu sig fróða í því máli sem um ræðir. Eins og gengur og gerist þótti úttektin af mörgum vera ósmekkleg á meðan þeir einstaklingar sem komust á lista voru margir hverjir yfir sig kátir með sinn sess og tilheyrandi umtal.
En hvað er það sem gerir karlmenn ómótstæðilega? Í greininni segir meðal annars:
„Útskýringar kvennanna á því hvað sé góður elskhugi eru flestar almenns eðlis. Samkvæmt könnun okkar hefur forleikurinn í víðasta skilningi þess orðs hvað mest að segja, þ.e.a.s. hvernig elskhugarnir bera sig að; hvernig þeir veiða, hvaða orð eru sögð, hvernig þau eru sögð, líkamstjáningin og fleira til, eða með hvaða hætti tekst að virkja þessa merku kyntöfra almennt. Það þarf því, eins og gefur að skilja, töluvert til að teljast góður elskhugi.“
Tíu árum eftir birtingu upphaflegu greinarinnar tók Pressan upp á því að rifja upp fjaðrafok þessarar upptalningar og var þá rætt við fáeina einstaklinga sem þóttu vera með bestu elskhugum Íslands að mati álitsgjafa. Sumir voru kátir með auglýsinguna á meðan aðrir voru svo sannarlega á gagnstæðu máli, eins og sjá má að neðan.
Fyrr í vor gaf DV út úttekt á eftirsóttustu bólfélögum Íslendinga og má segja að viðbrögð hafi verið af svipuðu tagi. En margir hafa eflaust gleymt þessari áðurnefndu úttekt álitsgjafa um íslensku elskhugana og meint ágæti þeirra. Þá þýðir ekkert annað en að grandskoða þar nöfnin auk þess að varpa ljósi á það hvar hvar nokkrir þeirra heppnu eru staddir í dag.
ÞETTA VORU BESTU ELSKHUGAR ÁRSINS 1994 – að mati álitsgjafa Pressunnar
Listamaðurinn og trommarinn Kormákur Geirharðsson var sáttur með að komast á þennan umtalaða lista á sínum tíma. „Þetta er góður hópur manna og ég ánægður að vera þar á meðal,“ sagði hann í viðtali við Pressuna árið 2004. „ Það er ánægjulegt að margir þeirra sem komust á listann skyldu hitta á sínar lukkustundir með þessum ábyrgu álitsgjöfum.“ En til gamans má geta að Langi Seli og Skuggarnir, Oxsmá, Tónabræður og Íkarus eru á meðal fjölda sveita sem Kormákur hefur leikið með.
„Ég var nýgiftur, var búinn að vera giftur í tvær vikur. Þannig að þetta gat ekki verið verra. Mér fannst sem nýgiftum manninum þetta afar ósmekklegt og trúði vart mínum eigin augum.“ Þetta sagði Björn Jörundur, tónlistarmaður, en hann var á báðum áttum með að vera opinberaður sem einn af heitari elskhugum Íslands. Björn hefur auðvitað vakið mikla lukku með hljómsveitinni Nýdönsk og hefði hann trúlega verið ánægðari með sæti sitt á lista elskhuganna ef hann hefði verið einhleypur á þeim tíma. En það er aðeins getgáta.
„Það var mikil kynorka á Kaffibarnum á þessum tíma,“ segir Baltasar í upprifjun Pressunnar árið 2004, en hann sá hvorki neitt móðgandi né athugavert við sinn sess á umræddum lista. Baltasar rak sjálfur Kaffibarinn á sínum tíma en manninn þarf vart að kynna fyrir landanum enda einn, ef ekki þekktasti kvikmyndagerðarmaður Íslands. Í áraraðir hefur hann bæði gert kvikmyndir hérlendis sem erlendis, auk þess að daðra annað slagið við leikhúsverkefni. Að svo stöddu hefur Baltasar nýlokið framleiðslu á annarri seríu Ófærðar og má næst eiga von á spennutryllinum Deeper, með hinum eina sanna Idris Elba í aðalhlutverki, en hann var kosinn kynþokkafyllsti karlmaður ársins 2018 af tímaritinu People. Því má segja að íslenskur kynþokki mæti erlendum og verður fróðlegt að sjá afraksturinn.
Rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Friðrik Erlingsson var ekki par sáttur með upprifjunina árið 2004, en þar segir hann: „Ég kemst ekki hjá því að sjá þetta öðruvísi en að mannorði mínu hafi verið nauðgað af blaði yðar og eins og öllum fórnarlömbum nauðgunar ber að gera ætla ég ekki að bera skömmina með þögn.“
Margir þekkja til Óskars undir því merki að vera einn ástsælasti kvikmyndagerðarmaður þjóðarinnar, með flotta titla undir belti á borð við Sódómu Reykjavík, Perlur og svín og Reykjavík-Rotterdam. Einnig eru ýmsir sem muna eftir Óskari undir heiti töframannsins „Skari skrípó.“ Hvað honum hefur tekist að töfra fram í svefnherberginu nú sem fyrr er eitthvað sem má lengi spyrja sig að.
Páll var einna þekktastur fyrir að vera söngvari hljómsveitarinnar Bubbleflies sem starfaði við góðan orðstír hér um árið. Upp úr síðari hluta tíunda áratugarins gafst hann upp á hljómsveitinni og fór að stunda nám við Myndlista- og handíðaskólann. Hann þykir mjög hæfileikaríkur teiknari og þótti jafnframt sýna eldhressa takta í einu aðalhlutverki kvikmyndarinnar Blossi/810551. Undanfarin ár hefur hann starfað mestmegnis við myndlist sína erlendis og gert ágætishluti.
Willum er fyrrum knattspyrnumaður og þjálfari í knattspyrnu og núverandi þingmaður fyrir Framsóknarflokkinn. Willum er einnig menntaður rekstrarfræðingur og hefur kennt hagfræði við Menntaskólann í Kópavogi. Willum var í ungmennalandsliðunum í körfubolta og knattspyrnu en valdi knattspyrnuna fram yfir körfuboltann.
Ari Alexander Ergis Magnússon kemur úr listamannafjölskyldu og var hárgreiðslumeistari í áraraðir áður en hann snéri sér að kvikmyndagerð. Í fyrrahaust sendi hann frá sér sína fyrstu leiknu kvikmynd í fullri lengd, en það var spennudramað Undir halastjörnu sem fjallaði um líkfundarmálið svokallaða frá árinu 2004 sem öll þjóðin fylgdist með. Ari er hæfileikaríkur og með sérstæðan persónuleika. Segja má einnig að aldurinn hafi farið vel með hann, eða eins og Stuðmenn orðuðu það: „Mikið líturðu vel út, beibí. Frábært hár.“
Milljarðamæringurinn Björgólfur Thor Björgólfsson var fyrsti Íslendingurinn sem komst á lista Forbes Magazine yfir 500 ríkustu einstaklinga heims. Áður en kappinn náði að gerast slíkur brautryðjandi sá hann meðal annars um rekstur á tveimur stærstu skemmtistöðum Reykjavíkur á fyrri árum, Tunglinu og Skuggabarnum. Björgólfur trónir enn á Forbes-listanum og hefur tekið þar hin ýmsu stökk á undanförnum árum. Hann er í fínum málum.
Á þeim tíma þegar listinn var unninn var Hákon framkvæmdastjóri HM í handbolta. Síðan þá hefur hann gegnt stjórnunarstöðum, bæði sem fjármála- og framkvæmdastjóri hjá framleiðslu og þjónustufyrirtækjum. Hann hefur flutt erindi um stefnumótun og verkefni á því sviði víða um heim og staðið fyrir heimsóknum fræðimanna á sviði stefnumótunar og stjórnunar til landsins. Hákon er með meistaragráðu í stefnumótun og stjórnun frá Copenhagen Business School og menntaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Ekki amalegur ferill.
Stefán Jónsson hefur verið áberandi í íslensku leiklistarsenunni frá upphafi tíunda áratugar síðustu aldar. Hann hefur dúkkað upp í kvikmyndunum Ryð, Strákarnir okkar, Gauragangur auk fyrri seríunnar af Ófærð. Einnig gegndi hann störfum fagstjóra á leikarabraut sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands. Sinnti hann því starfi í tíu ár en nýverið steig hann til hliðar við leikstjórn lokaverkefnis útskriftarnema við skólann í kjölfar umræðunnar um #metoo byltinguna.
Þorsteinn Jens Vilhjálmsson, betur þekktur sem Þorsteinn Joð, hefur lengi verið fastagestur í sjónvarpstækjum Íslendinga. Hjá mörgum hefur hann verið kenndur við Ísland í dag en ófáir muna einnig eftir honum sem kynni spurningaþáttarins Viltu vinna milljón? Þess ber að geta að sama ár og hann var valinn einn af heitari elskhugum landsins vann hann einnig til Åke Blomström verðlaunanna fyrir framúrskarandi störf í útvarpi.
Tónlistarmaðurinn Sigurður Bjóla var um árabil söngvari og lagasmiður í Spilverki þjóðanna ásamt Hrekkjusvínum og var um skeið liðsmaður í Stuðmönnum. Sigurður hefur ekki verið fyrirferðarmikill í fjölmiðlum undanfarna áratugi og hefur hann haldið sig á Stokkseyri að mestu.
Tónlistarmaðurinn Richard Scobie sló í gegn með hljómsveit sinni Rikshaw á áttunda áratugnum og gerði ekki síður lukku með hljómsveitinni Loðin rotta. Síðar meir sneri hann baki við poppinu og hefur í seinni tíð helgað sig kvikmyndagerð og auk þess að skrifa handrit framleiðir hann og leikstýrir undir merkjum Arctic Monkey Productions. Richard býr á Írlandi og lauk fyrir nokkrum árum MA-prófi í handritsgerð frá National Film School á Írlandi með hæstu einkunn.
Þorvaldur hefur farið yfir víðan völl, meðal annars sem meðlimur í hljómsveitunum Exodus, Pax Vobis, Geiri Sæm og Hunangstunglið, Todmobile og Tweety. Auk þess hefur hann fengist við útsetningar, upptökustjórn og tónlistarstjórn í leikhúsi og kvikmyndum. Hann hefur samið tónlist fyrir nokkra íslenska söngleiki eins og Ávaxtakörfuna, Benedikt búálf og Hafið bláa. Hann hefur þrisvar verið höfundur að lagi sem hefur keppt fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Fyrst var það All out of luck árið 1999, síðan If I had your love 2005 og Til hamingju Ísland 2006. Og hver getur gleymt því þegar hann gegndi hlutverki dómara í Íslensku Idol stjörnuleitinni sem hófst árið 2003.
Neðangreindir karlmenn voru einnig nefndir í upptalningunni miklu.
Atli Bergmann sölumaður og dyravörður
Davíð Magnússon tónlistarmaður
Eyjólfur Kristjánsson söngvari
Fjölnir Bragason myndlistarmaður
Friðrik Weisshappel veitingamaður
Harald G. Haralds leikari
Hjalti Rögnvaldsson leikari
Jóhannes Arason barþjónn
Jón Sæmundur Björnholt
Jón Kaldal blaðamaður
Jón Skuggi bassaleikari
Leifur Leópoldsson nýaldarfrömuður
Matthías Viðar Sæmundsson bókmenntafræðingur
Pétur Ottesen
Sindri Gunnarsson, iðnhönnuður og flugþjónn
Tryggvi Tryggvason arkitekt