Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Davíð Sigurgeirsson, eignuðust son 19. júní. Fyrir eiga hjónin dóttur sem fædd er árið 2015.
„Þessi dásamlegi drengur kom í heiminn 19. júní með hraði. Öllum heilsast vel og við gætum ekki verið þakklátari fyrir þessa tvo demanta,“ skrifar Jóhanna Guðrún á Facebook og birtir mynd af systkinunum.
Fókus óskar fjölskyldunni innilega til hamingju með drenginn.