Björn Bragi Arnarsson og Benedikt Valsson eru ekki aðeins bráðfyndnir grínistar. Þeir eru einnig svo líkir að fólk á það til að rugla þeim saman.
Nýlega var greint frá því að Björn Bragi myndi snúa aftur í sýningar hjá uppistandshópnum Mið Íslandi. Hann hefur haldið sig til hlés eftir að hann náðist á myndband, þuklandi á stúlku á Akureyri. Sagði hann sig þá til dæmis frá spyrilsstöðunni í Gettu betur.
Benedikt söðlaði um og tók við sem stjórnandi þáttarins Satt eða logið á Stöð tvö í fyrra. Áður hafði hann slegið í gegn hjá Ríkissjónvarpinu í þættinum Hraðfréttir ásamt Fannari Sveinssyni.