En það þarf einnig að sinna því andlega og líkamlega og Ellý hefur undanfarið stundað líkamrækt af krafti í Reebok. Svo vel hefur henni líkað þar að næsta sunnudag, 29. apríl kl. 12, mun hún leiða sinn fyrsta hugleiðslutíma þar í Reebok Fitness Faxafeni.
„Ég ætla að endurræsa mig á sunnudaginn í hádeginu, þetta er nefnilega best ef þú vilt finna það sem ég loksins loksins loksins finn, segir Ellý á Instagram.
„Áhersla er lögð á innri ró og vellíðan í okkar hraða nútímasamfélagi með núvitundarhugleiðslu sem stendur yfir í eina klukkustund. Stígðu inn í nýja viku endurnærð/ur og í góðu jafnvægi með einfaldri leið til að öðlast innri frið og styrkja tengingu við kjarna þinn.“