Ellý Ármanns sem gerði upphaflega garðinn frægan sem þula hjá RÚV og síðar meir sem fjölmiðlakona hjá 365 miðlum birtir á Instagram síðu sinni nektarmyndir teiknaðar af henni sjálfri. Þótt hún segi það ekki beint út má sjá hana fáklædda á annari mynd þar sem hún notar myllumerkið #fyrirmyndin.
Í dag rekur hún fréttamiðilinn frettanetid.is ásamt því að sinna myndlist af mikilli ástríðu. Upphaflega fór Ellý að selja verk sín vegna fjárhagsvandræða en svo virðist sem listin hennar sé að falla vel í kramið hjá landsmönnum og að verkin rjúki út um leið og þau eru kláruð.