Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason tekst nú á við nýja áskorun, að verða dansari. Það er Ástrós Traustadóttir sem ætlar að aðstoða hann við það.
Ástrós er meðal annars Frakklandsmeistari í samkvæmisdönsum árið 2010 og Íslandsmeistari árið 2014.
Þau verða danspar í þáttunum Allir geta dansað, en þættirnir sem eru íslensk útgáfa af þáttunum Dancing with the Stars byrja þann 11. mars næstkomandi á Stöð 2.
Á meðal annarra sem taka munu þátt eru Bergþór Pálsson barítónsöngvari, Jón Arnar Magnússon, tugþrautarkappi og kírópraktor, Lóa Pind Aldísardóttir sjónvarpskona, Ebba Guðný Guðmundsdóttir matargyðja og Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður, sem öll munu fá atvinnudansara sem dansfélaga.
Lesa einnig: Bergþór og Hanna Rún eru glæsilegt par og Ebba hreppir Javi