Öskudagurinn er í dag og í tilefni dagsins brugðu bæði smærri og stærri einstaklingar sér í búning. Að venju sníktu börn nammi hér og þar gegn því að syngja eitt lag. Viðbúið er að þeir fullorðnu njóti góðs af góðgætinu þegar heim er komið.
Þjónatríó Kolfinna, Elín Þóra og Sóley eru frábærir framtíðarstarfsmenn á Hamborgarafabrikkunni.
Sjóræningi og ninja Feðgarnir Birgir Axelsson og Adrían 6 ára. Voffinn passar með í þemað.
Lögga Unnsteinn Gunnarsson 4 ára sá um að allt færi eftir settum reglum á leikskólanum.
Krítartafla Ragnheiður Líney Pálsdóttir fagstjóri í upplýsingatækni og kennari í Lindaskóla.
Einhyrningur Leah Mist Brandsdóttir 2 ára.
Þvottamaskína Hanna Soffía Hermannsdóttir 12 ára var með þvottinn á hreinu.
Skellibjalla Sigurrós Nadía 3 ára flott sem álfurinn úr Pétri Pan.
Hjartalæknir Marvin Gylfi er flottur í læknabúningnum.
Minecraft þrenna. Vinirnir Hrafnkell Dagur Valsteinsson, Róbert Gauti Arnarsson og Unnar Ómar Viggósson.
Bókarkápa Sigþrúður Gunnarsdóttir, ritstjóri barnabóka hjá Forlaginu, var að sjálfsögðu bók í tilefni dagsins.
Ævintýraprinsessur Vinkonurnar Brynja og Magdalena Mjöll voru flottar sem Elsa og Poppy.
K100 krakkarnir Morgunhanarnir og gleðigjafarnir Ásgeir Páll, Kristín Sif og Jón Axel mættu eldhress í búning í morgunsárið.
Skellibjalla Helena Kristín Hermannsdóttir 5 ára fallegur álfur úr ævintýrinu um Pétur Pan.
Batman Kristín Fjóla er ofurhetja.