Stefán Octavian Gheorge svarar Gróu á Leiti
Íslenska klámstjarnan Stefán Octavian Gheorge á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Á dögunum var hann gagnrýndur fyrir að hafa birt klám á Snapchat-reikningi sínum. Gekkst hann við mistökum sínum og eyddi færslunni.
Nú gengur sá orðrómur fjöllum hærra að Stefán hafi nauðgað konu á Íslandi. Hann ræðir ásakanirnar á Snapchat-reikningi sínum og furðar sig á því að nokkur skuli trúa þessu.
Ástæðan er einföld, hann er samkynhneigður og hefur engan áhuga á konum. Segir Stefán erfitt að glíma við slíkan orðróm á meðan hann glímir við bullandi þunglyndi.