Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, og Ragnheiður Agnarsdóttir settu upp hringana um jólin en þau hafa verið saman síðan árið 2017.
„Það hefur verið eitt mitt mesta lán í lífinu að kynnast honum Óla mínum og allri hans fjölskyldu,“ skrifaði Ragnhildur í lok apríl um manninn í lífi sínu.
Ólafur var áður ritstjóri hjá Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Hann var kvæntur Halldóru Traustadóttur í tuttugu ár og um tíma var hann með Hildi Sverrisdóttur, varaþingmanni Sjálfstæðisflokksins.
Ragnheiður er stofnandi Heilsufélagsins og starfaði áður sem framkvæmdastjóri Tryggingamiðstöðvarinnar. Hún var áður gift Þórði Friðjónssyni, forstjóra Kauphallar Íslands, sem féll frá langt fyrir aldur fram árið 2011.