Við sögðum frá því í gær að bandaríski hnefaleikakappinn Floyd Mayweather væri staddur á Íslandi, en hann fór beint í Bláa lónið.
Hann stoppaði þó ekki lengi við á Íslandi því samkvæmt Instagram var hann kominn til borgar ástarinnar, Parísar, í gærkvöldi.
https://www.instagram.com/p/Boe9VYOhaUT/?taken-by=floydmayweather
Fyrst taldi kappinn þó 100 dollara seðlana, sem er líklega algjör óþarfi því Mayweather er metinn á 700 milljónir dala eða þar um bil.
https://www.instagram.com/p/Boe5OSohutm/?taken-by=floydmayweather