Guðjón er faðir Dóru Bjartar, borgarfulltrúa Pírata. Dóra vann mikinn kosningasigur í sveitarstjórnarkosningunum í vor og náðu Píratar tveimur mönnum inn. Hún hefur hins vegar staðið í ströngu að undanförnu, bæði vegna braggamálsins og þá hefur verið gert gys að henni fyrir leikþátt í pontu borgarstjórnar.
Guðjón er einnig faðir Sigrúnar Lilju, eiganda fatamerkisins Gyðju Collection.