„Hún hefur alltaf haft gaman af því að segja sögur, leika og haft frumkvæði af alls kyns bralli, alveg frá blautu barnsbeini,“ segir Garðar Garðarsson, faðir Sögu Garðarsdóttur, leikkonu og handritshöfundar.
Hann segir að Saga hafi verið svolítill prakkari í sér en þó alltaf einlæg. „Hún er ekki hrædd við að láta skoðanir sínar í ljós og er með mikla réttlætiskennd en setur það alltaf fram á skemmtilegan máta. Það er það sem er skemmtilegt við hana.“
Saga var einn af handritshöfundum áramótaskaupsins 2017 og var áberandi í mörgum atriðum. Garðar segir skaupið vel lukkað að þessu sinni:
„Mér fannst þetta alveg frábært skaup en maður veit alltaf að það eru tvær hliðar á þessu, það er alltaf hluti sem verður alltaf kolvitlaus en í þessu tilfelli voru óvenju margir sem nutu þess, manni heyrist það.“