Klæddist jakka úr Rauða krossinum
Eddan íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin fóru fram við hátíðlega athöfn á Nordica á sunnudagskvöldið. Meðal góðra gesta á hátíðinni voru forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og eiginkona hans, Eliza Reid.
Meðal góðra gesta á hátíðinni voru forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid. Vakti Eliza athygli fyrir jakkann sem hún klæddist, en aðspurð sagði hún hann keyptan í Rauða kross versluninni í Þingholti. Sannarlega glæsileg og alþýðleg forsetahjón.
Sjónvarpsþættirnir Fangar voru sigursælust á hátíðinni með tíu verðlaun, en þar á eftir kvikmyndin Undir trénu með sjö verðlaun.