„Fartölvan mín hlýtur að vera uppáhaldstækið mitt á heimilinu. Ég handleik hana allavega mest af öllum tækjum. Hún er magnaður töfragluggi út í umheiminn og ótrúlega öflugt gjallarhorn til að koma skilaboðum og skoðunum út í kosmósið. Í gegnum hana hef ég meðal annars tekið eitt stykki háskólanám, skrifað fjöldann allan af greinum og hugleiðingum og komist í samband við fólk úti um allan heim. Það er eitthvað.“