Leikkonan Rose McGowan, sem á síðasta ári þótti sýna mikið þor þegar hún steig fram með ásakanir um nauðgun á hendur kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein, gefur sterklega í skyn í nýrri Instagram-færslu að gjörðir Weinsteins séu stór partur af ástæðunni fyrir því að umboðkonan Jill Messick kaus að taka líf sitt.
Fjölskylda Jill telur þó að ásakanir McGowan á opinberum vettvangi á hendur Messick hafi orsakað að hún sökk í frekara þunglyndi, sem hún hafði barist við í mörg ár. Átti Messick víst gífurlega erfitt með að vera ýtt í sviðljósið á þennan hátt og leið eins og peði í deilum McGowan og Weinstein í fjölmiðlum.
McGowan hafði áður sakað Messick um að hafa haft fulla vitneskju um alvarleika brota Weinstein gegn sér sem Messick þvertók fyrir að hafa gert.