fbpx
Mánudagur 25.nóvember 2024
Fókus

Jóhanna Guðrún var ranglega greind með frjókornaofnæmi og missti sjónina

Aníta Estíva Harðardóttir
Miðvikudaginn 31. janúar 2018 22:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hefur í mörg ár fangað hug og hjörtu Íslendinga með hugljúfri rödd sinni og faglegri framkomu. Jóhanna varð snemma landsþekkt en hún var lengi talin ein skærasta barnastjarna landsins og hefur því verið í sviðsljósinu öll sín mótunarár.

Þegar Jóhanna var einungis níu ára hóf hún að koma fram sem söngkona og sendi einnig frá sér sinn fyrsta geisladisk sem bar nafnið Jóhanna Guðrún 9.

Það var árið 2009 sem Jóhanna Guðrún sló í gegn í Rússlandi fyrir hönd Íslands í Eurovision og lenti í öðru sæti, einungis átján ára gömul en þó hokin af reynslu. Lagið sem Jóhanna söng svo eftirminnilega heitir „Is it true“ og eftir söngvakeppnina sló lagið met á iTunes sem mest sótta lagið.

„Þetta var náttúrlega alveg tryllt og ég áttaði mig engan veginn á þessu fyrr en löngu eftir að ég kom heim. Enn þann dag í dag finnst mér rosalega skrítið að hugsa til þess því þetta er í rauninni svo ofboðslega stórt afrek,“ segir Jóhanna Guðrún í viðtali við DV.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Á það til að vera full vör um sig og lokuð

Jóhanna Guðrún er tuttugu og sjö ára í dag og á eina tveggja ára stelpu sem heitir Margrét Lilja. Jóhanna var mjög ung þegar hún varð fræg á Íslandi og hefur það mótað líf hennar mikið.

„Það vissu náttúrlega allir hver ég var og auðvitað var það ekkert alltaf skemmtilegt“

„Fullorðna fólkið í kringum mig var afskaplega meðvitað um að það þyrfti að passa mig og fylgjast vel með mér svo það var mjög rétt tekið á þessu. En að sjálfsögðu fékk ég miklu meiri athygli og í skólanum voru oft einhverjir krakkar að kalla á eftir mér, það vissu náttúrlega allir hver ég var og auðvitað var það ekkert alltaf skemmtilegt. Það jákvæða er kannski að þetta undirbjó mig betur fyrir það sem ég geri í dag, ég er búin að sjá einhvern veginn allt og það er voðalega fátt sem kemur mér á óvart. Þannig að ég hef mjög mikla reynslu þrátt fyrir að vera bara tuttugu og sjö ára og fólk heldur oft að ég sé miklu eldri af því að ég er búin að vera í sviðsljósinu síðan ég var svo lítil. Það slæma er kannski að ég er full vör um mig og oft lokuð. Vinkonur mínar hlæja oft að því að ég sé með svona smá félagsfælni en ég viðurkenni það náttúrlega ekki. Ég á fáa en mjög góða vini og ég á erfitt með aðstæður þar sem ég er kannski með einni vinkonu minni og hún stingur upp á því að fara að hitta eitthvert annað fólk sem ég þekki ekki vel. Ég held að þetta sé tengt þessu,þar sem það er náttúrlega bara fáránlegt að vera svona og ég veit það alveg. Þetta er líklega svona eini fylgifiskurinn sem ég hef sjálf tekið eftir að sé neikvæður.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Jóhanna segir að þrátt fyrir að hún hafi ekki átt venjulega æsku þá myndi hún engu vilja breyta.

„Sama hvað þú gerir í lífinu, ef þú ætlar að skara fram úr í einhverju þá þarftu að fórna einhverju“

„Þetta er í raun faktor sem maður ræður ekkert við. Þú veist, sama hvað þú gerir í lífinu, ef þú ætlar að skara fram úr í einhverju þá þarftu að fórna einhverju. Öll mín unglingsár þurrkuðust að mörgu leyti alveg út því ég var bara erlendis á plötusamningi og svona. En ég tók þá ákvörðun alveg sjálf og það var enginn sem neyddi mig til þess að gera neitt. Þannig að á meðan vinkonur mínar voru að byrja að djamma, drekka og skemmta sér þá var ég bara á plötusamningi og að syngja og því fylgdi mjög mikil ábyrgð. Svo ég gerði aldrei neitt af þessum hlutum og var eiginlega aldrei með af því að ég var einhvern veginn alltaf að gera eitthvað annað.“

Skólaganga Jóhönnu gekk nokkuð vel fyrir sig enda hefur hún alltaf haft bein í nefinu og lærði snemma að svara fyrir sig.

„Ég átti góðar vinkonur og ég hef alltaf staðið upp fyrir sjálfa mig og varið mig ef svo hefur borið undir. Ég held að allir hafi fattað að ég myndi svara fyrir mig og því þýddi ekkert að vera með nein leiðindi.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Fannst hallærislegt að taka þátt í Eurovision

Jóhanna Guðrún var einungis átján ára þegar hún fór út til Rússlands sem fulltrúi Íslendinga í söngvakeppni sjónvarpsins með lagið „Is it true“ sem hafnaði í öðru sæti. Jóhanna segir að enn þann dag í dag sé afar skrítið að minnast þessa tíma enda hafi þetta verið ofboðslega stórt afrek.

„Mér hafði fundist eitthvað voðalega hallærislegt að taka þátt í þessari keppni og leit á mig sem einhvern alvarlegan listamann“

„Við vorum með frábært lag og flott atriði sem margir komu að og þetta var bara æðislegt. Ég held að það hafi líka hjálpað að ég var aðeins 18 ára og var lítið að spá í þetta. Ég var nefnilega búin að vera svolítill auli varðandi Eurovision, mér hafði fundist eitthvað voðalega hallærislegt að taka þátt í þessari keppni og var ekki alveg að fíla hana, leit á mig sem einhvern alvarlegan listamann. Í dag veit ég auðvitað mikið meira og þekki þessa keppni og myndi aldrei láta þetta út úr mér. En á þessum tíma fékk ég símtal frá Óskari Páli Sveinssyni sem er einn af höfundum lagsins og ég var að klára sýningu á Broadway og hafði ekkert annað að gera. Ég var bara einhvern veginn: „Já, já. Ég hef ekkert annað að gera“ en svo varð þetta ótrúlega skemmtilegt verkefni. Við Óskar náðum að vinna mjög vel saman og hann er algjör snillingur í útsetningum. Þarna fékk ég líka upp í hendurnar tækifæri til að vinna með mjög flottu fólki og síðan fór þetta svona. Guð minn góður, aldrei héldum við að þetta myndi fara svona langt. Ég hélt ekki einu sinni að þetta myndi vinna forkeppnina á Íslandi. Ég var bara „já já, ég er að fara að taka þátt í Eurovision“.“

Eftir Eurovision-ævintýri Jóhönnu var hún mikið erlendis, í Svíþjóð og Danmörku til dæmis, og kom henni það í opna skjöldu að fólk vissi hver hún var.

„Það kom mér á óvart því ég hélt einhvern veginn að ef ég færi út fyrir landið mitt þá myndi enginn þekkja mig ekki aldeilis, en ekki í eins miklum mæli og hér heima, en samt.“

6 hlutir sem þú vissir ekki um Jóhönnu Guðrúnu

  1. Jóhanna Guðrún elskar góðan ítalskan mat

  2. Jóhanna er skó-, tösku- og kápufíkill og á allt of mikið af þessu öllu

  3. Það er erfitt að finna manneskju sem hefur meira keppnisskap en Jóhanna

  4. Jóhanna verður mjög sár út í sjálfa sig í lengri tíma ef henni finnst hún ekki syngja eitthvert gigg nógu vel, jafnvel þótt hún hafi gert sitt allra besta

  5. Jóhanna er mikil fjölskyldumanneskja og það besta sem hún veit er að hafa alla fjölskylduna nálægt sér

  6. Jóhanna hefur aldrei smakkað áfengi eða reykt

Aldrei að segja aldrei

Aðspurð hvort hún hafi áhuga á því að taka þátt í Eurovision aftur segist Jóhanna aldrei ætla að segja aldrei.

„Ég hef náttúrlega tekið þátt í forkeppninni tvisvar eftir þetta og þetta er rosalega gaman. Ég fæ boð frá mörgum á hverju einasta ári um að taka þátt en mér finnst þetta eiginlega vera fullreynt. Ég lenti þarna í öðru sæti og ég mun líklega ekki ná betri árangri en það, þannig að þetta er fínt. En ég ætla samt aldrei að segja aldrei, ef ég fengi eitthvert sjúklegt lag upp í hendurnar sem mér fyndist ég þurfa að syngja þá myndi ég gera það, en ég hef ekki ennþá fengið það lag. Ég hef samt fengið mörg mjög góð, en ekki það rétta. Ég hugsa að ef ég tæki þátt þá myndi ég líklega frekar vilja vera höfundur en ekki syngja sjálf. Mér finnst ég líka svolítið vera á öðrum stað, er bara að gefa út mitt eigið efni og það er mjög mikið að gera. Svona keppnir taka mikið af manni, þær taka andlega afar mikið. Ég er mjög mikil keppnismanneskja og þegar ég er að keppa þá gef ég mig alla í það.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Þjáðist af liðagigt í Eurovision en gleymdi sársaukanum á sviðinu

Jóhanna Guðrún hefur þjáðst af liðagigt síðan hún var níu ára en fékk þó ekki rétta greiningu fyrr en eftir að hún tók þátt í Eurovision. Það hafði þó alltaf verið ljóst að um einhvers konar gigt var að ræða enda var Jóhanna mjög veik í mörg ár. Jóhanna var mjög þjáð af gigt þegar hún gekk að sviðinu í Rússlandi en segist þó hafa gleymt sársaukanum um leið og upp á svið var komið og hún byrjaði að syngja.

„Ég get ekki skorið kjöt á diski né gengið sjálf þegar ég er sem verst“

„Ég næ samt alltaf að tjasla mér saman fyrir gigg og slíkt, en síðustu ár hef ég verið á lyfjum sem virka vel á mig. En ef ég hef lent í einhverju millibilsástandi, hef þurft að hætta á lyfjunum eða eitthvað svoleiðis, þá verð ég mjög veik. Það bólgnar allt upp og ég fær verki í alla liði og á erfitt með að hreyfa þá. Það er bara sárt að hreyfa sig, ég fæ vöðva- og vefjaverki með þessu. Ég fæ líka hita og skelf öll, get ekki skorið kjöt á diski né gengið sjálf þegar ég er sem verst. Sem betur fer gekk meðgangan ótrúlega vel fram að 36 viku en þá byrjaði dóttur minni að líða svakalega illa. Ég fékk mikinn bjúg undir lokin og þegar ég var gengin 38 vikur var ég sett af stað því ekki var talið ráðlegt að láta þetta ganga lengur. Ég léttist svo um 11 kíló af bjúg fyrstu vikuna eftir að hún fæddist.“

Ranglega greind með frjókornaofnæmi og missti sjónina

Þegar Jóhanna var sautján ára stundaði hún söngnám í Danmörku. Eftir tónleika í skólanum eitt kvöldið fór Jóhönnu að verkja í annað augað og taldi það vera saklausa sýkingu. Nokkrum dögum síðar var hún flogin til Íslands og er heppin að hafa haldið sjóninni.

„Eftir tónleikana voru allir að segja mér að ég væri líklega komin með sýkingu í augað svo ég skolaði það, tók verkjalyf og fór svo að sofa. Ég vissi ekkert hvað ég ætti að gera en daginn eftir staulaðist ég á spítala og læknirinn sagði að ég væri örugglega með frjókornaofnæmi, sem er alveg fáránlegt því það lýsir sér ekki svona. Þannig að það var brugðið á það ráð að fljúga mér strax heim, pabbi dró fram VISA-kortið og ég kom heim með dýrasta farinu og beint á spítalann. Þá var ég orðin mjög slæm af lithimnubólgu sem er tengd gigtinni. Ég var alveg hætt að sjá með öðru auganu og það var allt orðið grátt yfir. Ég var lögð inn á spítala í tíu daga á meðan það var verið að ná þessu niður. Ég er ekki alveg með fulla sjón í dag en ég myndi þó ekki segja að þetta hái mér, ég sá þó eins og örn áður en þetta gerðist.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Heppin þegar þau eignuðust dóttur sína

Margrét Lilja, dóttir Jóhönnu Guðrúnar, er rúmlega tveggja ára og segir Jóhanna Guðrún móðurhlutverkið yndislegt starf.

„Þetta gerist ekkert alltaf eins og maður vill og við vorum mjög heppin þegar við áttum hana“

„Hún er rosalega hraust og dugleg og við erum ótrúlega stolt af henni og teljum okkur heppin að vera foreldrar hennar. Hún er í rauninni afar lík okkur, hefur húmorinn hans pabba síns og skapið hennar mömmu sinnar.“

Jóhanna og Davíð Sigurgeirsson, kærasti hennar og barnsfaðir, hafa rætt frekari barneignir og eru þau sammála um að þau vilji eignast fleiri börn. Jóhanna segir þó erfitt að ákveða þessa hluti enda hafi þau verið heppin þegar þau eignuðust dóttur sína.

„Þetta gerist ekkert alltaf eins og maður vill og við vorum mjög heppin þegar við áttum hana. En jú, við höfum rætt það okkar á milli að okkur langi allavega í tvö börn og ætlum svo að sjá til með framhaldið. Það er náttúrlega mjög erfitt að vera bæði tónlistarmenn, vinnan okkar er svo sundurslitin og misjöfn eftir árstíðum. Ég væri örugglega byrjuð að skella í annað ef það væri ekki að valda mér áhyggjum. Mér finnst dóttir okkar nú þegar vera mikið hjá öfum sínum og ömmum á kvöldin. Þrátt fyrir að hún elski það þá finnst manni hún alveg vera nógu mikið í pössun. En svo eftir því sem hún eldist þá getur hún oft komið með á æfingar og svoleiðis.“

Jóhanna segir dóttur sína flotta tónlistarkonu og að þegar hún sé sjálf að læra lög sé hún fljótlega farin að syngja þau með henni.

„Kannski aðeins barnalegri en ég en hún er auðvitað bara tveggja ára. Ef hún vill þá getum við kennt henni allt sem við kunnum en ef hún vill gera eitthvað annað þá má hún alveg gera það.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Vinna best saman

Jóhanna og Davíð hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina og þekkja því vel inn á hvort annað.

„Í raun, allt sem við gerum er saman, alveg svona 80 prósent af minni vinnu er með Davíð. Þannig að þetta er bara heimilisreksturinn hjá okkur. Það er líka enginn betri en hann og við erum alltaf best saman, við tengjumst svo vel og skiljum hvort annað svo vel í þessu.“

Á döfinni hjá Jóhönnu og Davíð eru Evu Cassidy-tónleikar sem haldnir verða þann 10. febrúar en fljótt varð uppselt á tónleikana og ákváðu þau því að setja upp aukatónleika klukkan 17 sama dag, sem enn er hægt að næla sér í miða á.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Skipulögð brotastarfsemi mikið áhyggjuefni

Skipulögð brotastarfsemi mikið áhyggjuefni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Endaði á spítala og í hjólastól eftir atriði í klámmynd – Mætt fyrir framan myndavélarnir degi seinna

Endaði á spítala og í hjólastól eftir atriði í klámmynd – Mætt fyrir framan myndavélarnir degi seinna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Dularfull eftirlýsing lögreglunnar á Norðurlandi vestra vekur athygli – „Ætlið þið að vera með skemmtiatriði hjá þeim sem svara?“

Dularfull eftirlýsing lögreglunnar á Norðurlandi vestra vekur athygli – „Ætlið þið að vera með skemmtiatriði hjá þeim sem svara?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gleymið Bjarna og kökuskreytingunum – nú er það Bjarnapitsa – „Sjáið drenginn, hann á ekkert að vera að vinna á þingi“

Gleymið Bjarna og kökuskreytingunum – nú er það Bjarnapitsa – „Sjáið drenginn, hann á ekkert að vera að vinna á þingi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Maður þarf bæði að leyfa henni að vera og fara, sorginni“

„Maður þarf bæði að leyfa henni að vera og fara, sorginni“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prestur rekinn eftir að hafa hleypt Sabrinu Carpenter inn í kirkjuna

Prestur rekinn eftir að hafa hleypt Sabrinu Carpenter inn í kirkjuna