Verslunin Snúran flutti nýlega í stærra og glæsilegra húsnæði í Ármúla. Af því tilefni var boðið í innflutningspartý þar sem boðið var upp á veitingar og drykki, góða tónlist og kaupauka. Án efa var Moscow Mule bolllinn það vinsælasta þann daginn, enda hefur drykkurinn slegið í gegn á Íslandi í sumar.
Þrjár sumarlegar Guðrún Símonardóttir, Jóhanna Gústavsdóttir og Sjöfn Þórðardóttir voru ferskar og sumarlegar.
Glæsileg Guðrún Fyrirlesarinn og sjálfsræktargyðjan Guðrún Bergmann er alltaf glæsileg og geislandi.
Fjöldi gesta Það var góður fjöldi sem kíkti við í opnunarpartýinu.
Bauð upp á veitingar Lilja Ingibjargardóttir frá Finlandia á Íslandi sá um að engan skorti veitingar.
Dynjandi rythmi Benni b-ruff, Benedikt Freyr Jónsson, sá um að halda uppi stuðinu með góðri tónlist.