Ástin, eins dásamlegt afl og hún er, endist ekki alltaf. Ást milli einstaklinga getur kulnað af ýmsum ástæðum eða jafnvel af engri ástæðu.
Hér eru nokkur þekkt pör sem slitu sambandi sínu á árinu.
Búin að flúra yfir fyrrverandi Ellý Ármanns, eigandi Fréttanetid.is, og Steingrímur Erlingsson bóndi, athafnamaður og fyrrverandi forstjóri Fáfnis Offshore, eru hætt saman. Þau voru búin að vera í sambandi í ár, en í viðtali í MAN í sumar sagðist hún alsæl með nýju ástina í lífi sínu. Athygli vakti fyrir stuttu að hún hafði látið húðflúra nafn hans á sig, en nú er sambandinu lokið og Ellý búin að setja nýtt flúr yfir nafn Steingríms.
Markaðsfulltrúi á markaðnum Heiðar Austmann, útvarpsmaður og markaðsfulltrúi, og Stefanie Esther Egilsdóttir eru hætt saman. Parið var búið að vera saman í nokkur ár og eiga eina dóttur saman.
Single á þingi Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, og Hildigunnur Einarsdóttir, söngkona og kórstjóri, opinberuðu samband sitt fyrr á árinu, en þau eru nú hætt saman.
Fjarsambandið hélt ekki Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush.is, skildi í sumar við hinn hollenska Niels van der Voort, en þau voru búin að vera í sambandi í fjögur ár.
Skildu sem vinir Rúrik Gíslason knattspyrnumaður og Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdastjóri World Class, voru saman í fjögur ár og skildu fyrr á árinu sem vinir.