Segir Rúvara aðeins spila sinn eigin hávaða og sína vini – Færslan að mestu leyti í háfstöfum
Söngkonunni Leoncie var heitt í hamsi á aðfangadag. Ástæðan var sú að í ár fékk söngkonan engin stefgjöld greidd og telur Leoncie að um samsæri sé að ræða.
„RúvararR eru með hatursfordóma í minn garð. Þeir spila aðeins sinn eigin hávaða og vini,“ segir Leoncie í tilfinningaríkri færslu á Facebook-síðu sinni. Þess má geta að ofangreind tilvitnun var öll skrifuð með hástöfum.
Þá sakaði hún Útvarpsstjóra um að vera einræðisherra sem svaraði sér ekki sem og stjórnendur STEF. Telur hún fullvíst að stefgjöldin hennar hafi farið í Ameríkuferðir fyrir stjórnendur FÍH (Félags íslenskra hljómlistarmanna) og FTT (Félag tónskálda og textahöfunda) auk vina þeirra.
Aðrar ásakanir Leoncie er ekki við hæfi að hafa eftir á jóladegi en hún endaði þó færsluna á jákvæðu nótunum. „Hver dagur ofan jarðar er sigur,“ sagði Leoncie.