Jónína Ben, detox-sérfræðingur, lokaði nýverið Facebook síðu sinni vegna þess sem gengið hefur á í einkalífi hennar. Sagðist hún hafa „misst fótanna“ og „skrifað tóma dellu“ undir áhrifum áfengis. Nú er í burðarliðnum viðtal við hana í Vikunni sem hún lýsir sjálf sem lokauppgjöri við lífið þar til nú. Hún segist ekki erfa hluti við fólk en fyrirgefi þó ekki þeim sem eru í glæpnum miðjum. „Þú afsakar ekki morðingjann meðan hann er enn að murka lífið úr manninum þínum eða barninu.“ Búast má við að viðtalið, sem kemur skömmu eftir áramót, verði safaríkt og áhrifamikið.