Bifreið Illuga Jökulssonar rithöfundar var stolið við Skólastræti í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Illugi greinir sjálfur frá þessu á Facebook þar sem hann hvetur fólk til að deila færslunni.
Bifreiðin stóð á bílastæði við Skólastræti í miðborg Reykjavíkur þegar henni var stolið en um er að ræða rauðan eða vínrauðan Subaru Legacy árgerð 2004. Númerið er KG-135.
„Þetta er ekki skemmtilegt. Hann er auðþekkjanlegur af beyglu við hægra afturljósið. Elsku bestu látið mig eða lögregluna vita ef þið sjáið hann. Og dreifið þessu fyrir mig.“