Spurning vikunnar var: „Hvernig finnst þér kosningabaráttan hafa verið?“
Ellert Baldursson „Ég fylgist ekki með þessu. Mér finnst þetta svo hrikalega leiðinlegt. Hef ekki horft á einn einasta þátt eða kynnt mér framboðin að nokkru leyti.“
Dagbjört Guðmundsdóttir „Mér hefur fundist kosningabaráttan frekar leiðinleg. Mér finnst íslensk pólitík orðin mjög skrítin. Að mínu mati hugsa frambjóðendurnir meira um eigin hagsmuni heldur en fólkið. Því miður.“
Ingibjörg Eiríksdóttir „Mér finnst ekkert um kosningabaráttuna. Ég hef ekkert fylgst með henni.“