fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
Fókus

Aðalskona í eyðimörkinni

Hneykslunarhellan Jane Digby – Lifði óvenjulegu og skrautlegu lífi

Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 28. maí 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin breska Jane Digby, sem fæddist árið 1807, var af aðalsættum, undrafögur, mjög listræn, þótti góður málari og lék á píanó, gítar og lútu og hafði fallega söngrödd. Hún var sautján ára gömul þegar foreldrar hennar ákváðu að gifta hana Ellenborough lávarði. Hann var þrjátíu og fjögurra ára gamall ekkill, laglegur, auðugur og metnaðargjarn stjórnmálamaður. Um leið var hann illa þokkaður af þeim sem þekktu hann.

Hún tók upp nýjan lífsstíl, gekk í ullarfötum, svaf oft undir berum himni, stundaði veiðar og eldaði mat við eld.

Ellenborough gerðist snemma afhuga konu sinni og frístundum eyddi hann með hjákonum sínum og eignaðist barn utan hjónabands. Jane fór að horfa í kringum sig og eignaðist son með frænda sínum, en eiginmaðurinn taldi barnið vera sitt. Jane fann nýjan ástmann, Felix Schwarzenberg, prins frá Austurríki. Samband þeirra var á allra vörum. Austurríski sendiherrann í London varð svo áhyggjufullur vegna stöðu mála að hann sá sér ekki annað fært en að vara Felix við því að sambandið gæti skaðað hann verulega. Til að draga athyglina frá ástarsambandi sínu við Jane fór Felix að sjást með öðrum konum. Jane gekk niðurbrotin um veislusali Lundúnaborgar og sagði hverjum sem hlusta vildi að elskhugi sinn hefði yfirgefið sig. Þegar hún komst að því að hún væri barnshafandi eftir Felix hugðist hún yfirgefa eiginmann sinn og fylgja Felix. Hann kærði sig hins vegar ekki lengur um hana.

Óhætt er að segja að hún hafi lifað óhefðbundnu lífi.
Hin unga Jane Óhætt er að segja að hún hafi lifað óhefðbundnu lífi.
Óhætt er að segja að hún hafi lifað óhefðbundnu lífi.
Hin unga Jane Óhætt er að segja að hún hafi lifað óhefðbundnu lífi.

Fjölskrúðugt ástarlíf

Jane fæddi dóttur og skömmu eftir fæðinguna lést sonur hennar, tæplega tveggja ára. Eiginmaður hennar sótti um skilnað en Jane var enn á ný barnshafandi eftir Felix. Hún fæddi son sem lést tíu daga gamall. Jane hélt til München þar sem hún komst í kynni við Lúðvík, konung Bæjaralands, og milli þeirra tókst innileg vinátta sem fór ekki framhjá fólki og almennt var talið að hún væri ástkona konungsins.

Karl Venningen barón var einn af mörgum aðdáendum Jane. Hann bað hennar og hún tók bónorðinu þótt hún léti sig enn dreyma um að Felix snerist hugur og myndi senda eftir henni. Þau Karl áttu saman dreng og síðar stúlku sem seinna var vistuð á geðveikrahæli. Umskipti urðu enn í lífi Jane þegar hún kynntist Theotokis greifa, sem kallaður var Spiro. Hann var glæsilegur maður, af aðalsættum frá grísku eyjunni Korfú. Jane yfirgaf eiginmann sinn og börn þeirra til að fylgja Spiro. Þau eignuðust son, sjötta barn Jane. Jane hafði ekki verið umhyggjusöm móðir en fékk samstundis mikla ást á þessum nýfædda syni sínum.

Sumarið 1846 var Jane í sumarfríi á Ítalíu ásamt hinum fimm ára gamla syni sínum. Drengurinn var staddur á þriðju hæð húss þeirra þegar hann heyrði rödd móður sinnar þar sem hún stóð utan dyra. Hann hallaði sér yfir svalahandriðið, missti jafnvægið og féll fyrir fætur móður sinnar á marmaragólf. Hann lést samstundis. Jane og Spiro skildu skömmu síðar.

Fyrsti eiginmaður Jane. Skilnaður þeirra þótti mikið hneyksli.
Ellenborough Fyrsti eiginmaður Jane. Skilnaður þeirra þótti mikið hneyksli.

Ást í eyðimörkinni

Hin ævintýragjarna Jane var í stöðugri leit að hinni einu sönnu ást. Jane kynntist grískri andspyrnuhetju, Christodoulos Chatzipetros, sem var á sjötugsaldri, og þegar hann var gerður að héraðsstjóra í Lamíu fylgdi hún honum. Hún tók upp nýjan lífsstíl, gekk í ullarfötum, svaf oft undir berum himni, stundaði veiðar og eldaði mat við eld. En ævintýrið í fjöllunum stóð einungis í nokkra mánuði. Þegar hún komst að því að elskhuginn átti í ástarævintýri með þjónustustúlku hennar yfirgaf hún hann.

Carl Haag málaði þessa mynd árið 1859.
Málverk af Jane Carl Haag málaði þessa mynd árið 1859.
Milli þeirra Jane ríkti mikil vinátta og talið er að hún hafi verið ástkona hans.
Lúðvík I konungur Bæjaralands Milli þeirra Jane ríkti mikil vinátta og talið er að hún hafi verið ástkona hans.

Jane var orðin 46 ára og lét hvergi deigan síga í leit sinni að ástinni. Hún fór í gott frí til Mið-Austurlanda og í Sýrlandi hitti hún bedúínahöfðingjann Saleh, sem var tuttugu árum yngri en hún. Hún gerði sér miklar væntingar til hjónabands en þær vonir brugðust þegar hún kom að honum í tjaldi með táningsstúlku. Næst lá leið hennar til Damaskus. Þar var leiðsögumaður hennar hinn ungi sjeik, Medjuel el Mezrab. Hann var að nálgast þrítugt, var tuttugu árum yngri en hún. Með þeim tókust miklar og hamslausar ástir og hann kvæntist henni í trássi við vilja fjölskyldu sinnar. Helming ársins bjuggu þau í glæsilegri höll í Damaskus, en hinn helming ársins bjuggu þau í tjöldum í eyðimörkinni. Jane gekk í arabískum fötum og lærði arabísku sem var eitt af níu tungumálum sem hún talaði.

Hjónaband Jane og Medjuel var afar hamingjuríkt og þar fann Jane hamingjuna sem hún leitaði alltaf svo staðfastlega að. Jane lést árið 1881, 74 ára gömul, eftir tæplega þrjátíu ára hjónaband. Eiginmaður hennar var harmi sleginn og hélt út í eyðimörkina þar sem hann fórnaði besta kameldýri sínu í minningu ástkærrar eiginkonu sinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Bókaspjall: Tvær ólíkar spennusögur

Bókaspjall: Tvær ólíkar spennusögur
Fókus
Í gær

Sjáðu Sigmund Davíð í trylltum dansi á skemmtikvöldi ungra Miðflokksmanna

Sjáðu Sigmund Davíð í trylltum dansi á skemmtikvöldi ungra Miðflokksmanna