Ólafur Darri Ólafsson leikari
Ólafur Darri Ólafsson leikari
1.312.000 kr. á mánuði
Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson er með mörg járn í eldinum en hann var nýverið viðstaddur Hollywood-frumsýningu nýjustu myndar Steven Spielberg, The BFG, sem hann leikur í. Ólafur vakti mikla athygli í Evrópu, þá sérstaklega í Bretlandi, í vetur þegar sjónvarpsþáttaröðin Ófærð fór sigurför um álfuna. Fjölmargir miðlar þar í landi fjölluðu um leikarann og lögreglustjórann Andra Ólafsson sem Ólafur Darri lék í Ófærð. Var hann í einum þeirra sagður nýjasta kyntáknið í sjónvarpi.