Hafþór Júlíus Björnsson aflraunamaður
Hafþór Júlíus Björnsson aflraunamaður
713.000 kr.
Hafþór Júlíus Björnsson, sterkasti maður Íslands síðustu sex ár, hefur heldur betur slegið í gegn. Eins og alþjóð veit þá leikur hann Sir Gregor „Fjallið“ Clegane í vinsælustu sjónvarpsþáttaröð veraldar, Game of Thrones. Þar að auki hefur hann leikið í auglýsingum erlendra fyrirtækja og keppt í hverju aflraunamótinu á fætur öðru. Hafþór birti nýverið lista yfir þann mat og kaloríur sem hann þarf að innbyrða á hverjum degi til að viðhalda þyngd sinni og styrk. Listinn vakti heimsathygli enda Hafþór orðinn það þekktur að bandarískir slúðurmiðlar elta hann á röndum. Fjallið var með 713.000 krónur á mánuði í laun í fyrra samkvæmt álagningarskrá RSK.