Stjörnublaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson hjá 365 miðlum óskaði vini sínum Bubba Morthens til hamingju með sextugsafmæli hans í Facebook-kveðju í gær. Hvatti hann þar vini sína til að koma lagi sem Bubbi söng, Maður hefur nú, inn á Youtube. Ekki er víst að tónlistarmaðurinn sé ánægður með þessa hugmynd enda alfarið á móti því að fólk verði sér út um höfundarvarið efni án greiðslu. Því megi líkja við að stela úr verslun.