Arnar Eggert Thoroddsen, aðjúnkt við félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands og tónlistarblaðamaður, er eins og flestir landsmenn mikill aðdáandi Guðmundar Benediktssonar íþróttalýsanda. Mynd af Gumma Ben er þessa dagana prófílmynd Arnars á Facebook en veggur hans er prýddur stöðuuppfærslum tengdum landsliðinu okkar. Ljóst er að aðjúnktinn er ánægður með lýsingar Gumma en Arnar vakti sjálfur mikla athygli fyrir tónlistargagnrýni sína í sjónvarpi mbl.is fyrir nokkrum árum.