Lögreglan þarfnast þinnar aðstoðar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Elvu Brá Þorsteinsdóttur sem er fædd árið 1990. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekkert sé vitað um ferðir hennar frá því um miðjan dag á þriðjudag, 14. júní síðastliðinn.
Elva er grannvaxin, 167 sentímetrar á hæð og er með dökkt sítt hár. Elva var klædd í svarta úlpu, svartar buxur, svarta rennda peysu og svarta strigaskó þegar hún sást síðast. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Elvu eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000.