fbpx
Föstudagur 29.nóvember 2024
Fókus

Heill dagur af einkahúmor

Steggjapartí Vignis í Agent Fresco

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 12. júní 2016 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vignir Rafn Hilmarsson er oft kallaður þokkafyllsti bassaleikari þjóðarinnar, en hann leikur á bassa í hljómsveitinni Agent Fresco. Nú er hann á leið í hnapphelduna því hann mun ganga í hjónaband með unnustu sinni, Hörpu Rut Sigurjónsdóttur, þann 16. júní.

Af því tilefni var Vignir steggjaður af vinum sínum um síðustu helgi, en steggjunin var kannski dálítið óvenjuleg. „Ég var búinn að biðja þá um að klæða mig ekki í einhvern búning og láta mig labba niður Laugaveginn,“ segir Vignir í samtali við blaðamann DV. „Ég vissi að vinir mínir væru með eitthvað í bígerð, en það kom mér mjög á óvart þegar ég var vakinn á laugardagsmorguninn.“

Útlitið var að minnsta kosti ekki upp á marga fiska.
Bugaður Útlitið var að minnsta kosti ekki upp á marga fiska.

Eins og barinn

Vinir Vignis, sem eru félagar hans úr tónlistinni í Agent Fresco, Úlfi Úlfi, Emmsje Gauti og plötusnúðar sem unnið hafa með hljómsveitunum, létu gamlan kunningja úr Tuborgtv á Þjóðhátíð í Eyjum vekja hann með látum. „Hann er rosalega fyndinn og við höfum hlegið mikið að viðtölunum hans í gegnum árin.“ Svo var kominn tími til að gera Vigni kláran fyrir daginn. „Þeir fengu förðunarfræðing sem hefur unnið við Game of Thrones til að koma og mála mig eins og ég hefði verið barinn. Það var virkilega vel gert og mörgum varð ansi óglatt af því að sjá á mér útganginn.“

Félagar úr Agent Fresco kátir í bakgrunni – Vignir hugsi.
Klár í slaginn Félagar úr Agent Fresco kátir í bakgrunni – Vignir hugsi.

Leiðin lá svo í Reykjavík Escape, þar sem piltarnir fengu það verkefni að komast út úr herbergi með þema úr kvikmyndinni Hangover, kannski nokkuð viðeigandi. „Okkur tókst að beita hugvitinu og komumst út hér um bil einni og hálfri mínútu áður en tíminn rann út. Það var ótrúlega skemmtilegt, en líka fáránlega krefjandi.“

Kokkteilar

Eftir þetta var bundið fyrir augu Vignis og farið með hann á vinnustaðinn sem fékk að njóta krafta hans í 11 ár. „Þeir keyrðu með mig upp í Garðheima. Ég var settur á stól, og bindið tekið af augunum. Þá var önnur internetstjarna mætt, strákur sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur strákunum. Hann heitir Jóhann Fönix og heldur úti rás á Youtube þar sem hann blandar ógeðslega kokkteila og drekkur þá sjálfur. Ég var sem sagt kominn með einkabarþjón og fékk meðal annars kokkteil sem var tveir hlutar tekíla, tveir hlutar viskí og einn dropi af Mountain Dew, og ýmislegt fleira í þeim dúr. Eftir þetta mætti litli matartrukkurinn frá Prikinu, og við grilluðum okkur hamborgara.“

Strákarnir snæddu borgara úr Prik-trukknum.
Hópurinn Strákarnir snæddu borgara úr Prik-trukknum.

Auglýstur sem trúbador

Á meðan vinahópurinn lá í grænu grasinu í Breiðholtinu fyrir utan Aktu Taktu var útvarp í bíl með galopna glugga stillt á Rás 2.

„Herra Gauti, með öll sín sambönd, var búinn að koma mér í útvarpið og þarna var Sóli Hólm að tala um það sem yrði á dagskránni hjá honum þennan daginn. Hann kynnti að gestur þáttarins yrði Vignir Rafn, sem ætlaði að nota sumarið í að troða upp sem trúbador. Að ég ætlaði að túra um landið og spila þekkta Eurovision-slagara og Blink 182-lög. Svo réttu strákarnir mér Fréttablaðið og þar var auglýsing um þetta líka. Ég fór auðvitað og spilaði og söng hjá Sóla í þættinum og hélt andlitinu allan tímann. Líklega mun ég þurfa að útskýra næstu árin að þetta hafi verið grín.“ Áheyrendur voru sem sagt nokkurn veginn sammála um að Vignir ætti að halda sig við bassaleik.

Kátur en ófrýnilegur í hópi góðra vina.
Vignir og félagar Kátur en ófrýnilegur í hópi góðra vina.

Dans og spuni

„Eftir þetta fórum við og lærðum dans við Beyoncé-lag hjá Stellu Rósenkranz í World Class. En um kvöldið var svo komið að því skemmtilegasta sem ég hef gert. Meðlimir úr Improv Ísland mættu til okkar og ég fékk að vera þátttakandi í spunaatriði með þeim. Ég mæli með því fyrir alla.“

Hópurinn í danstíma.
Dansarar Hópurinn í danstíma.

Dagurinn var sannarlega eftirminnilegur fyrir Vigni og vini hans. Fimmtudaginn 16. júní verður svo brúðkaup í Fríkirkjunni og veisla í Elliðaárdal. Vinir Vignis ætla að troða upp með tónlistaratriði bæði í kirkjunni og veislunni, en dagana á eftir eru þeir að spila á tónlistarhátíðinni Secret Solstice.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Áslaug Arna skar sig úr í 28 þúsund króna peysu

Áslaug Arna skar sig úr í 28 þúsund króna peysu
Fókus
Í gær

Magnús Hlynur miður sín þegar hann kom inn á N1 á Ártúnshöfða í morgun

Magnús Hlynur miður sín þegar hann kom inn á N1 á Ártúnshöfða í morgun
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur í áfalli yfir þyngdartapi söngkonunnar

Aðdáendur í áfalli yfir þyngdartapi söngkonunnar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Pabbi alræmdu hjákonunnar missti vinnuna – „Gerði hún HVAÐ á meðan hann svaf?!“

Pabbi alræmdu hjákonunnar missti vinnuna – „Gerði hún HVAÐ á meðan hann svaf?!“