„Farðu varlega, The Hound er á eftir þér!“ skrifar útvarpsstjarnan Auðunn Blöndal í Twitter-skilaboðum til Jóhannesar Hauks Jóhannessonar sem kom fram í nýjasta Game of Thrones-þættinum á mánudag svo eftir var tekið í hvívetna. Auddi hrósar Jóhannesi fyrir frammistöðuna og birti mynd af sér uppáklæddum sem Hundurinn frá því í auglýsingatöku fyrir Stöð 2 hér um árið. En Hundurinn hyggur á hefndir gegn Lem Lemoncloak, sem Jóhannes leikur, og félögum. Jóhannes svarar um hæl og segir hundskvikindið ekki eiga neitt í Lemoncloak.