fbpx
Fimmtudagur 05.september 2024
Fókus

Bærinn í ljósum logum

Rétt öld frá brunanum mikla – Eldhaf þvert yfir Austurstræti

Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 8. maí 2016 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laugardagskvöldið 24. apríl hið herrans ár 1915 var mikið um dýrðir á hinu reisulega Hótel Reykjavík við Austurstræti, einu stærsta timburhúsi landsins. Þar var þá haldin brúðkaupsveisla Hobbs fiskkaupmanns og Jósefínu Zoëga. Jósefína var dóttir Helga Zoëga, en systir hans, Margrét Zoëga, var eigandi Hótel Reykjavíkur.

Björn Jón Bragason skrifar:

Gestir héldu heim á leið úr veislunni um klukkan tvö um nóttina og brúðhjónin um hálfri klukkustund síðar. Eftir í húsinu voru Margrét, eigandi hótelsins, Helgi bróðir hennar, tvö barnabörn Margrétar, Guðjón Jónsson dyravörður, Englendingur nokkur er bjó á hótelinu og þjónustustúlkur.

„Eldur! Eldur!“

Eggert Briem, bóndi í Viðey, bjó um þær mundir í Ingólfshvoli, sem var steinhús á horni Hafnarstrætis og Pósthússtrætis. Laust fyrir klukkan þrjú fylgdi hann gestum sínum út úr húsi, en meðal þeirra var eigandi hússins, Guðjón Sigurðsson úrsmiður (faðir Gunnars skipamiðlara sem margir muna eftir) og þeir Ólafur Björnsson ritstjóri og Hannes Hafstein, fyrrverandi ráðherra. Sjá þeir þá hvar eldur hefur brotist út á annarri hæð Hótel Reykjavíkur. „Hljóp Eggert þegar af stað sem fætur toguðu og hrópaði um leið: „Eldur! Eldur!““

Er hann kom inn í hótelið kallaði hann yfir mannskapinn að kviknað væri í. Fólk virtist ekki almennilega trúa orðum hans en fylgdi í humátt á eftir honum upp á aðra hæð til að athuga herbergin. Fyrst var litið í herbergi Margrétar, sem var nr. 29. Þar var allt með felldu. Því næst var reynt að opna herbergi nr. 28, en það var læst. Guðjón dyravörður kom þá með lykil og þegar hurðinni var lokið upp kom í ljós að herbergið var alelda. Virtist eldurinn magnast mjög við þetta. Margrét vildi við svo búið sækja muni í herbergi sitt en Guðjón varnaði henni það. Hlupu þau öll út og brátt kváðu við sprengingar meðan eldurinn barst um æðra hæð hússins. Þjónustustúlkur komust út um glugga á kjallaranum, en Guðjón braust inn í kjallarann til að skrúfa fyrir gas.

Eldhafið leggur yfir götuna

Slökkviliðið var kallað út en svo illa vildi til að nokkrir vatnshanar Miðbæjarins reyndust með öllu ónothæfir vegna þess að farist hafði fyrir að tæma þá vatni, en síðan hafði frosið í þeim og þeir sprungið. Þá var þrýstingurinn ónógur á þeim vatnshönum sem þó rann úr. Slökkviliðið fékk lítið ráðið við eldinn og brann Hótel Reykjavík á svipstundu. Áfast hús austan við, þar sem Th. Thorsteinsson kaupmaður var með vefnaðarvöruverslun, brann hratt. Þar með var eldurinn orðinn svo magnaður að hann teygði sig í verslunina Godthaab, þar sem Reykjavíkurapótek var síðar. Við svo búið var ógerningur að komast að bálinu Austurstrætismegin. Lagði eldhafið yfir götuna og var hitinn óbærilegur.
Barst eldurinn brátt í Landsbankann norðan götunnar, sölubúð Hjálmars Guðmundsen, búð Egils Jacobsen, sem var vestan við Landsbankann og Kjötbúðina, næsta hús þar vestan við. Húsin Hafnarstrætismegin brunnu einnig, en það voru hús Gunnars Gunnarssonar kaupmanns, Ingólfshvoll og hús Edinborgarverslunar, en þar var Eimskipafélagið með skrifstofur. Öll brunnu þessi hús til ösku, að undanskildum Ingólfshvoli og Landsbankanum, sem stóðu þó eftir, en Landsbankinn var hlaðinn úr tilhöggnu grjóti og Ingólfshvoll steinsteyptur. Innan veggja Landsbankans brann þó allt sem brunnið gat og Ingólfshvoll stórskemmdist.

Grípum niður í frásögn Morgunblaðsins: „Eldhafið var nú svo ógurlegt að litlar líkur voru taldar á því að takast mundi að hefta frekari útbreiðslu þess. Stóð þá allur Miðbærinn í voða. Hið eina lán í þessu óláni var það að veður var kyrrt, aðeins hægur vestan blær og hjálpaði það til þess að stöðva eldinn að vestan.“ Þar með björguðust timburhúsin vestast í Austurstræti og Hafnarstræti. Eldur barst í pósthúsið, austan við megineldhafið, en hann varð slökktur. Þá var unnt að koma í veg fyrir að húsið Godthaab kveikti út frá sér og eldurinn breiddi úr sér lengra til austurs.“

Guðjón úrsmiður lætur lífið

Helst var reynt að ráða niðurlögum eldsins í Ingólfshvoli, enda steinhús. Stigi var reistur upp við húsið en hann reyndist of stuttur. Talið var að eina leiðin til að bjarga húsinu væri að koma slöngu upp á þak og hugðist Guðjón Sigurðsson úrsmiður fara í gegnum húsið. Matthías Þórðarson þjóðminjavörður hélt í Guðjón og vildi varna honum för. Guðjón reif sig þá frá honum og sagði eitthvað á þá leið að hann réði líklegast sjálfur hvað hann tæki sér fyrir hendur í sínu eigin húsi. Hljóp hann við svo búið inn í brennandi húsið. Guðjón fórst í eldinum, en hann mun hafa kafnað og fannst lík hans við kvistglugga á þakhæð.

Guðjón var efnaður maður og hafði hann mælt svo fyrir um í erfðaskrá sinni að mestur hluti eigna sinna skyldi renna í sjóð til eflingar tónlistarlífi í bænum. Sonur hans Gunnar varð síðar einn helsti forgöngumaður þess að reist yrði tónlistarhús í Reykjavík.

Einn maður brann inni í Hótel Reykjavík. Það var maður að nafni Runólfur Steingrímsson sem var starfsmaður hótelsins. Hann var lagstur til hvílu uppi á lofti hótelsins þegar eldurinn braust út.

Eldsupptök ókunn

Ekki var unnt að staðfesta hver eldsupptök voru, en helst var talið að kviknað hefði í út frá gaslampa og gassprenging orðið í húsinu. Þetta var talin sennilegasta skýringin í ljósi þess hversu hratt eldurinn breiddist út. Telja má að enn verr hefði getað farið hefði Guðjón dyravörður ekki skrúfað fyrir gasið í kjallara hótelsins.

Húsin sem brunnu algjörlega voru vátryggð fyrir um 750 þúsund krónur til allt að einni milljón króna sem var gríðarmikið fé á þeim tíma, en ekki var allt vátryggt. Innbú Hótel Reykjavíkur var óvátryggt og sömuleiðis stór hluti varnings í húsum Gunnars Gunnarssonar kaupmanns.

Samúðarskeyti barst frá Kristjáni X. konungi vegna þessa hörmulega atburðar.

Hefði getað farið verr

Margir veltu því fyrir sér í framhaldi af brunanum hversu miklu verr hefði getað farið í hvassviðri. Í ljós hafði komið að slökkvilið bæjarins var þess lítt megnugt að takast á við svo stóran bruna, en hvort tveggja skorti á tól og betri tilhögun. Þá þóttu köllunartæki ekki í lagi. Slökkviliðið réð heldur ekki yfir reykhjálmum og var því velt upp að hugsanlega hefði mátt bjarga lífi Guðjóns Sigurðssonar hefðu slökkviliðsmenn haft yfir slíkum búnaði að ráða. Umferðarstjórnun þótti ábótavant, en mannmergðin var mikil á brunastað. Mikil mildi þótti samt að ekki brynnu fleiri hús.

Mikið rask komst á bæjarlífið í kjölfar brunans, enda brunnu ýmis helstu verslunarhús höfuðstaðarins og jók bruninn enn á húsnæðisskortinn. Margir töldu að bruninn ætti „að kenna mönnum það fyrst og fremst að hrófla ekki upp stórum timburhúsum þar sem jafnþéttbýlt er og hér. Að vísu getur kviknað í steinhúsum, það hefir þessi bruni sýnt manni, en eldurinn verður þar aldrei jafnmagnaður og annars staðar“. Bruninn markaði þáttaskil í byggingarsögu Reykjavíkur, en í kjölfar hans var almennt horfið frá byggingu timburhúsa og steinsteypuöld hóf innreið sína.

Heimildir: Guðmundur Karlsson brunavörður, Í björtu báli, og frásögn Guðmundar í Lesbók Morgunblaðsins 1950, auk frétta blaðanna á sínum tíma.

Birtist áður í DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ljósbrot valin á BFI London Film Festival

Ljósbrot valin á BFI London Film Festival
Fókus
Í gær

Setur spurningarmerki við háttsemi læknisins sem sagði að hún gæti ekki eignast börn – Á von á sínu öðru barni

Setur spurningarmerki við háttsemi læknisins sem sagði að hún gæti ekki eignast börn – Á von á sínu öðru barni
Fókus
Í gær

Kevin myndaði eldgosið og átti ekki von á þessu – „Ekki vera þessi manneskja“

Kevin myndaði eldgosið og átti ekki von á þessu – „Ekki vera þessi manneskja“
Fókus
Í gær

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér
Fókus
Fyrir 2 dögum

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fékk nóg af Hollywood eftir að Matthew Perry dó

Fékk nóg af Hollywood eftir að Matthew Perry dó
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ofurfyrirsætan hefur glímt við krabbamein í sjö ár – Fór mjög umdeilda leið í átt að bata

Ofurfyrirsætan hefur glímt við krabbamein í sjö ár – Fór mjög umdeilda leið í átt að bata
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu