Tónlistarkonan Sóley er nú í óðaönn að semja efni á sína þriðju sólóplötu. Hún birti á fimmtudag myndband á Facebook-síðu sinni af sjálfri sér syngja lag af plötunni væntanlegu, aðdáendum hennar til mikillar ánægju.
Sóley, sem er uppalin í Hafnarfirði og er einnig meðlimur hljómsveitarinnar Seabear, gaf út plöturnar We Sink árið 2011 og Ask the Deep fjórum árum síðar.