Það var mikil eftirvænting í loftinu í Hörpu síðastliðinn föstudag þegar San Francisco-ballettinn, undir stjórn Helga Tómassonar, steig á svið í Eldborgarsalnum. Ballettflokkurinn er einn sá besti í heiminum, en Helgi hefur stýrt honum síðustu 30 árin. Sýningar flokksins eru hluti af Listahátíð 2016.