Íþróttafréttamaðurinn Henry Birgir Gunnarsson hjá 365 miðlum og eiginkona hans, Hildur Sigurðardóttir, eignuðust á mánudag litla stúlku. Hjónin, sem áttu tvö börn fyrir, voru að vonum hæstánægð með komu þriðja barnsins eins og sjá mátti í myndaalbúmi sem faðirinn stolti birti á Facebook síðu-sinni. „Hraust og glæsileg eins og hetjan hún móðir hennar,“ sagði Henry.