Forsetaframbjóðandinn og sagnfræðidósentinn Guðni Th. Jóhannesson opnaði kosningaskrifstofu sína um helgina. Skrifstofan er til húsa á Laugavegi 170. Margt var um manninn í opnunarhófinu og ljósmyndari DV á staðnum.
Mætt til Guðna Ragnheiður Clausen lét sig ekki vanta á Laugaveginn.
Skáld og sonur Skírnir Kristjánsson mætti ásamt móður sinni, Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur.
Tveir hressir Friðjón R. Friðjónsson og Ragnar Bjarnason.
Leikarafjölskylda Elma Stefanía Ágústsdóttir og Mikael Torfason mættu ásamt börnum sínum.
Bræður Forsetaframbjóðandinn ásamt bróður sínum, Patreki, sem landsmönnum er að góðu kunnur úr handboltanum.
Tveir í stuði Hrafn Jökulsson, bróðir forsetaframbjóðandans Elísabetar Jökulsdóttur, mætti í hófið hjá Guðna.
Glatt á hjalla Elín Hrefna Thorarensen og Gullveig Sæmundsdóttir.
Komu fram Bjarni töframaður og Þórunn Erna Clausen sem stýrði samkomunni.
Brjóstmynd á köku Myndina notar Guðni mikið í framboðinu. Frekar landsföðurleg.