Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, bað Guð að blessa Elísabetu Jökulsdóttur þegar hún gaf forsetaframbjóðandanum meðmæli sín á laugardag. Ástæðan var sú að Elísabet spurði þá Hildi hvort hún væri að fara að kjósa í sínum fyrstu forsetakosningum í júní. Hildur, sem er 37 ára, var að vonum ánægð með hrósið sem hún greindi frá á Facebook-síðu sinni.