Jóhannes Kristjánsson og Aðalsteinn Kjartansson, blaðamenn Reykjavik Media, hafa haft í nógu að snúast undanfarna daga. En þrátt fyrir annríki hlaupa menn ekki undan skyldum sínum við það sem mestu máli skiptir; fjölskylduna. Þannig mætti Aðalsteinn í Skaftahlíð til að vera í beinni útsendingu í hádegisfréttatíma Stöðvar 2, með barnungan son sinn í fanginu. Fyrrverandi samstarfsfélagar Aðalsteins gættu barnsins rétt á meðan beina útsendingin stóð yfir.