Agla Steinunn Bjarnþórudóttir og Sigurgeir Jónsson, sem kepptu um úrslit í þriðju og nýjustu þáttaröð Biggest Loser, hafa fundið ástina. Parið kynntist við tökur á þáttunum þar sem mjótt var á milli þeirra, en Agla stóð uppi sem sigurvegari, meðan Sigurgeir hafnaði í öðru sæti.
Smartland Mörtu Maríu kynnir þau sem „nýjasta parið í bænum“ og segir ástina hafi kviknað eftir að keppninni lauk. Bæði segja þau lífið gjörbreytt síðan þau tóku þátt í keppninni og gamlir draumar séu nú að verða að veruleika.
Agla og Sigurgeir ætla að leyfa ástinni að blómstra áfram á Balí en þau eru á leið í þriggja vikna ferðlag til eyjarinnar innan skamms.