fbpx
Fimmtudagur 05.september 2024
Fókus

Þrettán ára fréttakona

Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 24. apríl 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú stendur yfir Barnamenningarhátíð sem hefur undið upp á sig og skapað sér stóran sess í menningarlífi Íslendinga á undanförnum árum. Margir hafa í nægu að snúast í tengslum við hátíðina en þar á meðal er fréttakonan Þórdís Ólafsdóttir, sem sér um að segja fréttir af hátíðinni í gegnum Krakkarúv.

Þórdís Ólafsdóttir er þrettán ára gömul og stundar nám í Norðlingaskóla. Samhliða námi æfir hún dans og selló, það gefur því að skilja að lífið getur verið ansi annasamt hjá þessari duglegu stelpu. Þórdís leggur áherslu á að vera alltaf tilbúin að prófa eitthvað nýtt og óþekkt en í því ljósi heillaði starf fréttamanns hjá Krakkarúv þegar hún sá auglýsingu um starfið.

„Ég sá auglýst eftir ungum fréttamönnum hjá Krakkarúv í sjónvarpinu og mér finnst svo gaman að prófa eitthvað nýtt svo ég ákvað að slá til og senda inn umsókn. Mér finnst líka Barnamenningarhátíð svo skemmtilegur viðburður þannig að þetta er fullkomin leið til þess að taka virkan þátt í hátíðinni.“

Ásamt fjölda annarra barna og ungmenna sótti Þórdís um starfið sem aðeins örfáum útvöldum bauðst, þar á meðal henni.

„Að undanförnu höfum við farið á námskeið og kynningar til þess að undirbúa okkur fyrir starfið. Við höfum farið í mikla þjálfun og þurft að skila inn heimaverkefnum. Mér hefur þótt þetta undirbúningsferli ótrúlega skemmtilegt auk þess sem ég hef fengið að vinna með fólki sem ég hef litið upp til og kynnst fullt af skemmtilegum krökkum. Svo er ekkert sjálfgefið að fá að taka þátt í svona miklu menningarstarfi eins og Barnamenningarhátíð er. “

Þegar blaðamaður náði tali af Þórdísi var hún á leiðinni í sitt fyrsta verkefni sem fréttakona.

„Barnamenningarhátíðin er að byrja og upphafsatriðið er að hefjast. Við ætlum að sýna frá upphafsatriðinu og taka viðtöl við krakka sem eru á hátíðinni. Í framhaldinu erum við svo búin að skipuleggja mjög margt þannig að það eru margir viðburðir væntanlegir og margt spennandi framundan í starfinu.“

Spennan og eftirvæntingin leynir sér ekki í rödd Þórdísar sem viðurkennir pínulítið stress.

„Mér finnst ekkert erfitt við fréttaritarastarfið en þetta getur vafalaust orðið stressandi. Til dæmis er ekki hægt að vera smámunasamur því við þurfum að skila efni fyrir ákveðin tíma og maður getur alltaf og vill kannski gera betur en það gefst ekki tími til.“

Þarf að hafa hugrekki

Þórdís hafði aldrei áður leitt hugann að því að starfa sem fréttakona í framtíðinni en eftir þessa reynslu útilokar hún það ekki.

„Það er aldrei að vita nema ég verði fréttakona í framtíðinni. Mér hafði ekki dottið það í hug áður því ég hélt að það væri rosalega erfitt en svo virðist það vera bara mjög skemmtilegt. Ég hef lært mikið af þessu og sé núna hvernig maður ber sig að sem fréttamaður. Þetta er til að mynda mjög góð leið til þess að læra að koma fram og hjálpar að vinna gegn feimni. Ég þarf til dæmis að hafa hugrekki til þess að spyrja aðra hvort ég megi taka viðtal við þau.“

Fréttakonan unga á erfitt með að gera upp á milli þeirra viðburða sem Barnamenningarhátíð hefur upp á að bjóða. Sjálf hefur hún þó fengið tækifæri til þess að taka þátt í Upptaktinum en það er vettvangur fyrir ung tónskáld til þess að semja og koma verkum sínum á framfæri með aðstoð atvinnutónlistarfólks.

„Það sem mér finnst best við Barnameningarhátíð er hve rosalega fjölbreytt hún er og hvað hún býður upp á margt að skoða og gera fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Öll atriðin eru jafn spennandi en sjálf fékk ég að taka þátt í Upptaktinum fyrir nokkrum árum þannig að sá viðburður á sérstakan stað í hjarta mínu. Ég hlakka því einkar mikið til að sjá hvernig sá viðburður hefur breyst og hvað krakkarnir þar eru að brasa í ár.“

Að lokum er Þórdís spurð hvort henni þyki Barnamenningarhátíðin mikilvæg og hún hugsar sig ekki um þegar hún segir:

„Já, mér finnst hún mjög mikilvæg. Barnamenningarhátíð skapar tækifæri fyrir fjölskyldur til þess að vera saman og svo er ótrúlegt hvað litlir viðburðir á hátíðinni geta gert mikið fyrir svo marga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér
Fókus
Í gær

Bensi og Sunneva hugsa sér til hreyfings

Bensi og Sunneva hugsa sér til hreyfings
Fókus
Í gær

Hinn fimmtán ára Oddur Bjarni leggur til SKVÓP matseðil í grunnskólum landsins – Hefur sent forsetanum bréf

Hinn fimmtán ára Oddur Bjarni leggur til SKVÓP matseðil í grunnskólum landsins – Hefur sent forsetanum bréf
Fókus
Í gær

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Móðir sem fór í Disney World en skildi börnin eftir heima skiptir fólki í tvö lið

Móðir sem fór í Disney World en skildi börnin eftir heima skiptir fólki í tvö lið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – Kroppamyndataka á hótelherbergi og skvísufrumsýning

Vikan á Instagram – Kroppamyndataka á hótelherbergi og skvísufrumsýning
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég myndi ekki vilja að dóttir mín væri í sambandi með manni eins og mér“

„Ég myndi ekki vilja að dóttir mín væri í sambandi með manni eins og mér“