fbpx
Fimmtudagur 05.september 2024
Fókus

Kostnaðarsamt þegar ástvinur deyr erlendis

Andri Már lét lífið í fallhlífarstökki í Flórída árið 2013 – „Erfitt að þurfa að bera sig eftir öllu sjálfur“

Auður Ösp
Sunnudaginn 17. apríl 2016 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við gátum ekki fengið að sjá hann strax og það var hrikalegt að vita ekki neitt um framhaldið og hvað hlutirnir ættu eftir að taka langan tíma,“ segir Alda Kolbrún Haraldsdóttir sem missti son sinn, Andra Má Þórðarson í fallhlífastökksslysi fyrir þremur árum. Ofan á áfallið, óvissuna og sorgina bættust við mikil fjárútlát við að koma kistu Andra til landsins.

Vorið 2013 bárust fregnir af hörmulegu banaslysi tveggja íslenskra fallhlífarstökkvara í Bandaríkjunum. Þetta voru þeir Andri Már Þórðarson, 25 ára gamall nemandi í fallhlífarstökki og Örvar Arnarson, 41 árs, einn reyndasti fallhlífarstökkskennari landsins. Fregnirnar vöktu mikinn óhug og þá ekki síst innan alþjóðlega fallhlífarstökksheimsins, enda einsdæmi að tveir einstaklingar látist báðir í sama stökki.

Á meðan landsmenn snæddu páskasteikina beið Alda ásamt öðrum aðstandendum Andra eftir fregnum af rannsókn lögreglunnar í Flórída auk þess sem koma þurfti kistu Andra til landsins. Hún segir að ekki hafi verið um annað að ræða en setja sig á einhvers konar sjálfstýringu til að komast í gegnum þessa erfiðu tíma. Vinir og ættingjar hringdu, komu og fóru og allir voru í losti.

Alda leggur sig fram við að halda minningu Andra á lofti.
Minningin lifir Alda leggur sig fram við að halda minningu Andra á lofti.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Alda talar af reynslu þegar hún segir að þegar að dauðsfall verður erlendis, fjarri aðstandendum, þá geri það skelfilega stöðu enn verri. Ofan á áfallið og sorgina bætist við nístandi óvissa. „Það var engin áfallahjálp í boði og það er erfitt að þurfa að bera sig eftir öllu sjálfur hvað það varðar, verandi í algjöru losti.“

Síðar meir endaði ég á því að leita til Félagsmálastofnunar því ég var orðin hrædd um að ég myndi hreinlega enda inni á geðdeild. Mér tókst loks að fá viðtöl hjá sálfræðingi, þar sem ég fékk að tala út í eitt,“ segir hún og bætir síðan við að ofan á allt saman hafi bæst við mikil fjárútlát við að koma kistu Andra til landsins.

Meðlimir í fallhlífarstökksfélaginu Frjálst fall stukku seinna meir minningarstökk til heiðurs þeim Andra og Örvari. Í tilkynningu stóð að stökkheimurinn stæði á öndinni vegna harmleiksins. „Þessir heiðursmenn voru í huga og hjarta okkar og munu fylgja okkur að eilífu.“
Samheldinn hópur Meðlimir í fallhlífarstökksfélaginu Frjálst fall stukku seinna meir minningarstökk til heiðurs þeim Andra og Örvari. Í tilkynningu stóð að stökkheimurinn stæði á öndinni vegna harmleiksins. „Þessir heiðursmenn voru í huga og hjarta okkar og munu fylgja okkur að eilífu.“

„Til þess að fá kistuna heim þurftum við að borga útfararstofu úti í Bandaríkjunum sem sá um að undirbúa allt varðandi flutninginn. Sá kostnaður hljóp á hundruðum þúsunda. Með kostnaðinum sem bættist við útförina hér heima greiddum við rúmlega eina og hálfa milljón íslenskra króna,“ segir hún en í kjölfar harmleiksins setti fjölskylda Örvars Arnarsonar á fót minningarsjóð sem veitir aðstandendum sem missa ástvin í útlöndum fjárhagslegan stuðning hvað varðar flutning hingað til lands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér
Fókus
Í gær

Bensi og Sunneva hugsa sér til hreyfings

Bensi og Sunneva hugsa sér til hreyfings
Fókus
Í gær

Hinn fimmtán ára Oddur Bjarni leggur til SKVÓP matseðil í grunnskólum landsins – Hefur sent forsetanum bréf

Hinn fimmtán ára Oddur Bjarni leggur til SKVÓP matseðil í grunnskólum landsins – Hefur sent forsetanum bréf
Fókus
Í gær

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Móðir sem fór í Disney World en skildi börnin eftir heima skiptir fólki í tvö lið

Móðir sem fór í Disney World en skildi börnin eftir heima skiptir fólki í tvö lið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – Kroppamyndataka á hótelherbergi og skvísufrumsýning

Vikan á Instagram – Kroppamyndataka á hótelherbergi og skvísufrumsýning
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég myndi ekki vilja að dóttir mín væri í sambandi með manni eins og mér“

„Ég myndi ekki vilja að dóttir mín væri í sambandi með manni eins og mér“