fbpx
Þriðjudagur 03.september 2024
Fókus

Allir geta fengið krabbamein: Þau hafa sigrast á sjúkdómnum

Sumir hafa greinst oftar en einu sinni

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 9. mars 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Krabbamein fer ekki í manngreinarálit og talið er að þriðji hver einstaklingur fái krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Fræga fólkið er þar ekki undanskilið. Með miklum framförum í læknavísindum eru hins töluverðar líkur á því að fólk sigrist á krabbameini, greinist það nógu snemma. Fjöldi frægs fólks er í þeim hópi sem greinst hefur með krabbamein og sigrast á því. Þeir sem hér eru taldir upp hafa flestir verið lausir við meinið í nokkuð langan tíma og því litlar líkur á að það taki sig upp aftur.

Krabbi í blöðruhálskirtli

Robert De Niro sendi frá sér tilkynningu árið 2003 þess efnis að hann hefði greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli. Það er sami sjúkdómur og faðir hans lést úr. Baráttan hjá De Niro gekk blessunarlega betur því ári eftir að hann greindist sendi hann frá sér aðra tilkynningu um að væri hann væri laus við meinið. Og það hefur ekki tekið sig upp aftur.

Fræðir um skaðsemi sólar

Hugh Jackman hefur nokkrum sinnum fengið húðkrabbamein á mismunandi stöðum. Hann er sem betur fer laus við krabbamein um þessar mundir en eyðir drjúgum tíma í að fræða aðra um skaðsemi þess að vera of mikið í sólinni.

Vann allan tímann

Fyrrverandi Sex and the City-stjarnan Cynthia Nixon barðist við brjóstakrabbamein fyrir nokkrum árum og hafði betur. Meinið uppgötvaðist snemma og Nixon krafðist þess að fá að vinna allan tímann sem hún var í meðferðinni. Hún virðist hafa náð að losa sig alveg við sjúkdóminn því hann hefur ekki tekið sig upp aftur.

Mikil barátta árið 2008

John McCain öldungadeildarþingmaður á langa sögu um húðkrabbamein sem virðist reglulega blossa upp. Hann greindist fyrst árið 1993 en nýjasta tilfellið kom upp árið 2008 og háði hann baráttu við krabbamein á sama tíma hann barðist við Barack Obama um forsetastól Bandaríkjanna, sem forsetaefni repúblikana. Hann sigraði í mikilvægari baráttunni.

HPV-veiran sökudólgur

Michael Douglas var ansi opinskár þegar hann tilkynnti það fyrir nokkrum árum að hann hefði greinst með krabbamein í hálsi. Hann lét þær upplýsingar nefnilega ekki duga heldur greindi hann einnig frá því að krabbameinið hefði orsakast af HPV-veirunni sem sýkir húð og slímhúð á kynfærum, en getur einnig smitast í munn og kok. Það má því ætla að hann hafi fengið veiruna frá rekkjunautum sínum, jafnvel eiginkonunni. En Douglas sigraðist sem betur fer á þessu meini.

Krabbi í hálsi

Dustin Hoffman fékk einnig krabbamein í háls fyrir nokkrum árum, en hann læknaðist af meininu árið 2013 og hefur verið laus við það síðan.

Fann ljótan blett

Þrátt fyrir ungan aldur hefur raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian greinst með húðkrabbamein oftar en einu sinni. Hún var aðeins 19 ára þegar hún fann fæðingarblett á líkama sínum sem var skrýtinn á litinn og reyndist vera húðkrabbamein. Nokkrum árum síðar fann hún annan ljótan blett og þurfti að gangast undir aðra meðferð, vegna krabbameins. Nú eru nokkur ár síðan hún greindist síðast svo hugsanlega hefur hún unnið bug á húðkrabbameininu fyrir fullt og allt.

Með blóðkrabbamein

Michael C. Hall, betur þekktur sem fjöldamorðinginn Dexter í samnefndum sjónvarpsþáttum, barðist um tíma við sjúkdóminn Hodgkin’s Lymphoma, sem er ákveðin tegund blóðkrabbameins. Árið 2010 fékk hann hins vegar grænt ljós á að hann væri laus við sjúkdóminn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Grófu upp vandræðalegt tíst Liam Gallagher frá árinu 2017

Grófu upp vandræðalegt tíst Liam Gallagher frá árinu 2017
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Læknir stillir upp fullkominni æfingarútínu fyrir alla daga vikunnar

Læknir stillir upp fullkominni æfingarútínu fyrir alla daga vikunnar