fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
Fókus

Óblíð örlög Supermans

George Reeves og Christopher Reeve urðu ekki langlífir

Kolbrún Bergþórsdóttir
Laugardaginn 26. mars 2016 15:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í þessari viku verður myndin Batman v Superman frumsýnd hér á landi, en þar mætast þessar þekktu ofurhetjur. Ben Affleck fer með hlutverk Batmans og Henry Cavill er í hlutverki Supermans. Ofurhetjurnar hafa í áratugi glatt sjónvarps- og kvikmyndaunnendur. Fjölmargir leikarar hafa tekið að sér að túlka persónurnar. Adam West, Michael Keaton, George Clooney, Val Kilmer og Christian Bale eru meðal þeirra sem hafa leikið Batman. George Reeves og Christopher Reeve eru þekktustu leikararnir sem brugðu sér í hlutverk Supermans. Örlög þeirra beggja voru óblíð og reyndar svo mjög að talað hefur verið um að bölvun sé yfir Superman. Þeir hjátrúarfullu telja upp, máli sínu til stuðnings, fjölmörg og mismerkileg dæmi um áföll sem dundu á þeim sem unnu að Superman-sjónvarpsþáttunum og -kvikmyndunum og er þá sérstaklega vísað til örlaga George Reeves og Christopher Reeve.

Himinlifandi yfir frægðinni

George Reeves lék Superman í kvikmynd árið 1951 og síðan í afar vinsælum sjónvarpsþáttum sem sýndir voru á árunum 1952–58. Fyrsta kvikmyndahlutverk Reeves var í Á hverfanda hveli þar sem hann lék einn af vonbiðlum Scarlett O’Hara. Kvikmyndahlutverkin urðu fleiri en frægð öðlaðist hann ekki fyrr en í hlutverki sínu sem Superman í rúmlega hundrað sjónvarpsþáttum og nokkrum kvikmyndum um ofurhetjuna. Leikarinn var furðu lostinn en um leið himinlifandi yfir frægð sinni en hann hafði ekki haft mikla trú á áhrifamætti sjónvarpsins. Hlutverk Supermans var svo tengt Reeves að hann átti erfitt með að fá önnur hlutverk. Þvert á það sem ætla mætti auðgaðist hann ekki mjög á því að leika í sjónvarpsþáttunum vinsælu.

Sjálfsmorð eða morð?

Árið 1959 var komið að Reeves látnum á heimili hans og var byssa við hlið hans. Niðurstaða réttarrannsóknar var að hann hefði framið sjálfsmorð. Margir efuðust um það og töldu að hann hefði verið myrtur og enn aðrir töldu að um slysaskot hefði verið að ræða. Reeves var 45 ára gamall þegar hann lést. Gleðskapur var á heimili hans og skyndilega heyrðist skothvellur af efri hæðinni. Komið var að Reeves látnum í svefnherbergi hans. Þegar lögregla kom á svæðið voru gestirnir mjög drukknir og vitnisburður þeirra ruglingslegur og þversagnakenndur. Þótt aðstæður þættu benda til þess að Reeves hefði framið sjálfsmorð efuðust margir um það. Leikarinn hafði ekki þjáðst af þunglyndi heldur verið kátur og glaður síðustu mánuðina sem hann lifði. Göt eftir byssukúlur fundust í lofti og á gólfi og tómt skothylki undir líkinu. Þetta ýtti undir grunsemdir um að ekki hefði verið um sjálfsmorð að ræða.

George Reeves var gestur í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Lucy Ball.
Superman og Lucy Ball George Reeves var gestur í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Lucy Ball.

Hinir grunuðu

Ein kenning er sú að fyrrverandi ástkona hans, leikkonan Toni Mannix, hefði ráðið mann til að drepa leikarann. Toni var gift einum forstjóra MGM, Eddie Mannix, en átti í ástarsambandi við Reeves í sjö ár. Hann sleit sambandi þeirra og unnusta Reeves, leikkonan Leonore Lemmon, bar að Toni hefði setið um leikarann mánuðum saman. Leonore, sem var meðal gesta á heimili Reeves kvöldið sem hann dó, var einnig meðal grunaðra, hún var sjúklega afbrýðisöm og þau höfðu rifist heiftarlega kvöldið sem hann dó. Leonore fór frá Kaliforníu daginn eftir lát leikarans og sneri aldrei þangað aftur. Toni var harmi sleginn eftir lát leikarans.

Eftir dauða Reeves komst sú saga á kreik að hann hefði trúað því að hann væri Superman og hefði dáið þegar hann hefði reynt að fljúga. Sú saga er jafn fjarri raunveruleikanum og sú lífseiga saga að lík Walt Disney hefði verið fryst.

Kvikmyndin Hollywoodland fjallar um dauða Reeves. Ben Affleck fór þar með hlutverk Reeves og Diana Lane lék Toni Mannix. Gátan um dauða George Reeves er enn óleyst.

Háður öndunarvél og í hjólastól

Christopher Reeve sýndi mikið hugrekki í mótlæti
Háður öndunarvél og í hjólastól

Christopher Reeve var ungur að árum þegar hann hóf leikferil sinn. Hann lærði leiklist í Julliard þar sem hann kynntist Robin Williams og með þeim tókst djúp vinátta. Hann lék síðan á sviði með goðsögninni Katherine Hepburn sem hafði mikið dálæti á honum. Árið 1978 lék hann Superman í kvikmynd og varð heimsfrægur. Hann hafði aldrei verið sérstakur aðdáandi Superman en hafði þó horft á sjónvarpsþættina þar sem George Reeves lék kappann.

Christopher Reeve var svo sannfærandi í hlutverki sínu sem ofurhetjan að hann átti erfitt með að fá hlutverk í öðrum myndum. Árið 1995 var hann í útreiðartúr þegar hann féll af hesti sínum. Hann hálsbrotnaði og lamaðist fyrir neðan háls. Hann gat ekki andað hjálparlaust og var því háður öndunarvél og í hjólastól. Á næstum árum vakti hugrekki hans og lífskraftur í erfiðri lífsbaráttu mikla athygli og aðdáun umheimsins. Eftir slysið lék hann í nokkrum myndum, auk þess sem hann leikstýrði. Hann var ötull talsmaður rannsókna á sviði mænuskaða og stofnaði rannsóknasetur sem vann að slíkum rannsóknum, og þar eru börn hans nú í forsvari. Hann lést árið 2004 af völdum hjartabilunar, 52 ára gamall. Tveimur árum síðar lést ekkja hans, Dana Reeve, úr lungnakrabbameini, en hafði aldrei reykt. Hún var 44 ára gömul.

Kvikmyndin Superman Returns er tileinkuð Christopher og Dönu Reeves.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Skipulögð brotastarfsemi mikið áhyggjuefni

Skipulögð brotastarfsemi mikið áhyggjuefni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Endaði á spítala og í hjólastól eftir atriði í klámmynd – Mætt fyrir framan myndavélarnir degi seinna

Endaði á spítala og í hjólastól eftir atriði í klámmynd – Mætt fyrir framan myndavélarnir degi seinna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dularfull eftirlýsing lögreglunnar á Norðurlandi vestra vekur athygli – „Ætlið þið að vera með skemmtiatriði hjá þeim sem svara?“

Dularfull eftirlýsing lögreglunnar á Norðurlandi vestra vekur athygli – „Ætlið þið að vera með skemmtiatriði hjá þeim sem svara?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gleymið Bjarna og kökuskreytingunum – nú er það Bjarnapitsa – „Sjáið drenginn, hann á ekkert að vera að vinna á þingi“

Gleymið Bjarna og kökuskreytingunum – nú er það Bjarnapitsa – „Sjáið drenginn, hann á ekkert að vera að vinna á þingi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Maður þarf bæði að leyfa henni að vera og fara, sorginni“

„Maður þarf bæði að leyfa henni að vera og fara, sorginni“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prestur rekinn eftir að hafa hleypt Sabrinu Carpenter inn í kirkjuna

Prestur rekinn eftir að hafa hleypt Sabrinu Carpenter inn í kirkjuna