Nokkrir frægir leikarar hafa fallið fyrir morðingjahendi. Frægast er sennilega morðið á Sharon Tate sem fyllti heimsbyggðina skelfingu. Hér er sagt frá nokkrum leikurum sem glöddu kvikmyndaunnendur en hlutu þau örlög að vera myrtir.
Afbrýðisamur eiginmaður Dorothy Stratten var Playboy-fyrirsæta sem þótti efni í afbragðs gamanleikkonu. Hún lék meðal annars í myndinni They All Laughed, en myndin hér að ofan sýnir hana í hlutverki sínu. Við tökur á þeirri mynd tókust ástir með henni og leikstjóranum Peter Bogdanovich. Eiginmaður Stratten var fullur afbrýðisemi og þau hjón slitu samvistum. Skömmu síðar samþykkti Stratten að hitta hann á heimili hans. Þar skaut hann hana til bana, svívirti líkið og skaut síðan sjálfan sig. Stratten var tvítug þegar hún var myrt.Ástmaður hennar, Peter Bogdanovich, var harmi sleginn eftir lát Stratten en kvæntist nokkrum árum síðar systur hennar. Tvær kvikmyndir hafa verið gerðar um morðið á Stratten. Lag Bryan Adams The Best Was Yet To Come var samið með Dorothy Stratten í huga.
Þjáðist vegna samkynhneigðar Ramón Novarro var ein skærasta stjarna þöglu myndanna og kyntákn síns tíma. Hann var kaþólskur og þjáðist af sektarkennd vegna samkynhneigðar sinnar. Hann lék í myndum á borð við Ben Hur og mótleikarar hans voru stórstjörnur á borð við Gretu Garbo en myndin sýnir hann með henni í myndinni Mata Hari.Novarro var myrtur árið 1968, barinn svo illa að hann kafnaði í eigin blóði. Morðingjarnir voru ungir bræður sem hann hafði boðið heim til sín til að eiga við þá kynmök. Þeir voru dæmdir fyrir morðið sem þeir sögðu hafa verið óviljaverk framið í ölæði. Rithöfundurinn frægi, Charles Bukowski, skrifaði smásögu um morðið á Novarro.
Stunginn af ókunnum manni Ein frægasta mynd Sal Mineo var Rebel Without A Cause þar sem James Dean fór með aðalhlutverk. Þeir félagar sjást hér í myndinni. Mineo hlaut Óskarsverðlaunatilnefningu fyrir leik sinn í myndinni og einnig fyrir leik sinn í Exodus. Árið 1979 var hann að koma af leikæfingu þegar ókunnur maður stakk hann til bana með hníf. Örfáum árum seinna hafðist upp á morðingjanum sem sat 12 ár í fangelsi vegna verknaðarins. Mineo var 37 ára þegar hann lést.
Allt í lagi að deyja Haing Ngor var fyrstur Asíubúa til að hljóta Óskarsverðlaun. Það var árið 1985 fyrir leik hans í The Killing Fields þar sem hann lék kambódískan blaðamann. Ngor var ekki lærður leikari heldur læknir. Eftir frumsýningu myndarinnar sagði Ngor í viðtali við blaðamann New York Times: „Ef ég dey fljótlega þá er það í allt í lagi. Þessi mynd mun lifa í hundrað ár.“Árið 1996 var Ngor skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Los Angeles. Þrír meðlimir glæpagengis voru sakfelldir fyrir morðið. Ngor var 55 ára gamall þegar hann var myrtur.